Viðskipti innlent

Undirrituðu viljayfirlýsingu um úthlutun lóðar fyrir gagnaver

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lúðvík Geirsson bæjarstjóri, Arnþór Halldórsson, stjórnarformaður Titan Global ehf. og Bjarki Jóhannesson, sviðsstjóri skipulags- og byggingarsviðs, við undirritunina í dag. .
Lúðvík Geirsson bæjarstjóri, Arnþór Halldórsson, stjórnarformaður Titan Global ehf. og Bjarki Jóhannesson, sviðsstjóri skipulags- og byggingarsviðs, við undirritunina í dag. .
Hafnarfjarðarbær og Titan Global ehf. undirrituðu í morgun viljayfirlýsingu um úthlutun lóðar vegna uppbyggingar gagnavers í Hafnarfirði. Fyrirhugað gagnaver verður allt að 40 þúsund fermetrar að stærð og sú lóð sem því mun tilheyra allt að 54 þúsund fermetrar.

Lóðin sem um ræðir er í 1. áfanga Kapelluhrauns sem afmarkast af vegi meðfram mörkum eignarlands Geymslusvæðisins að norðan, Koparhellu og lóðar nr. 3 við Koparhellu að austan og mörkum akstursíþróttasvæðis að sunnan og suðvestan. Nánari rannsóknir þurfa að fara fram áður en endanleg staðsetning er ákveðin.

Lúðvík Geirsson bæjarstjóri segir uppbyggingu gagnavers í landi Hafnarfjarðarbæjar fara saman við markmið sveitarfélagsins um fjölbreytta atvinnuskapandi starfsemi og fagnar samstarfinu við Titan Global ehf. „ Það eru fleiri fyrirtæki sem hafa sýnt því áhuga að fá lóð undir gagnaver hér í Hafnarfirði. Nú í morgun var samþykkt í bæjarráði viljayfirlýsing milli Skýrr og Hafnarfjarðarbæjar um lóð undir gagnaver og verður skrifað undir þá viljayfirlýsingu á næstu dögum," segir Lúðvík í tilkynningu frá Hafnarfjarðabæ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×