Viðskipti innlent

Ívar greiði 12 milljónir í stjórnvaldssekt

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.

Eignarhaldsfélagið Ívar ehf. mun greiða 12 milljónir króna í stjórnvaldssekt fyrir að brjóta gegn banni samkeppnislaga við því að samruni Ívars og Lýsis kom til framkvæmda áður en Samkeppniseftirlitið hafði heimilað hann.

Ívar og Samkeppniseftirlitið gerðu sátt í málinu eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá eftirlitinu. Þar segir ennfremur að í lögunum sé lagt bann við því að samruni komi til framkvæmda áður en tilkynnt hefur verið um hann til Samkeppniseftirlitsins og ákvörðun eftirlitsins liggur fyrir um hvort samruninn hindri virka samkeppni, nema til komi sérstakt leyfi Samkeppniseftirlitsins. „Þessari reglu er ætlað að tryggja að unnt sé með fullnægjandi hætti að vinna gegn samkeppnishamlandi samrunum. Er sérstaklega gert ráð fyrir því í samkeppnislögum að lögð séu viðurlög á fyrirtæki sem brjóta gegn þessari reglu."

Ívar leitaði til eftirlitsins í kjölfar þess að fyrirtækinu var tilkynnt það mat Samkeppniseftirlitsins að svo virtist sem brotið hefði verið gegn banni samkeppnislaga við framkvæmd á samruna Ívars og Lýsis. Ívar óskaði eftir því að sátt yrði gerð í málinu og leiddu viðræður til þess að gerð við félagið líkt og Samkeppniseftirlitinu er heimilt samkvæmt samkeppnislögum. „Sú heimild er til þess fallin að stytta rannsókn og málsmeðferð samkeppnisyfirvalda," segir ennfremur.

Ívar er hluti af fyrirtækjasamstæðu sem á meðal annars Ísfélag Vestmannaeyja og stóran eignarhlut í eignarhaldsfélagi Árvakurs.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×