Þorsteinn dæmdur til að greiða víxil upp á 150 milljónir 20. desember 2010 14:43
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Þorstein M. Jónsson, oft auknefndur Steini í kók, til að greiða Nýja Landsbankanum víxil að upphæð 150 milljónir kr. ásamt dráttarvöxtum. Víxillinn var á gjalddaga 10. ágúst 2008 í gamla Landsbankanum en við fall þess banka tveimur mánuðum síðar færðist krafan yfir í Nýja Landsbankann. Þorsteinn bar því fyrir sig í málinu að frumrit víxilsins hefði ekki verið sýnt sér til greiðslu hvorki af gamla né nýja Landsbankanum. Frumritið var hinsvegar lagt fram í réttarhaldinu. Gerði Þorsteinn þrautavarakröfu í málinu að dráttarvextir yrðu ekki reiknaðir frá ágúst 2008, heldur frá 9. mars í ár þegar frumritið var lagt fram og féllst héraðsdómur á þá kröfu. Í niðurstöðu dómsins segir m.a. að af hálfu Þorsteins hefur því verið haldið fram að víxillinn hafi ekki verið sýndur til greiðslu. Því geti hann ekki verið viss um að bankinn sé réttur handhafi víxilsins. Engin gögn hafa verið lögð fram um að víxillinn hafi verið sýndur til greiðslu á gjalddaga eða stefnda tilkynnt um hann. Það telst því ósannað í málinu. Eins og fyrr greinir leysir það Þorstein hins ekki undan greiðsluskyldu samkvæmt víxlinum. Frumrit víxilsins var lagt fram við þingfestingu málsins 9. mars 2009 og verður að telja að þá hafi farið fram fullnægjandi sýning á honum til greiðslu.
Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Sjá meira