Lýgur til að hreinsa sjálfan sig 21. ágúst 2010 06:30 Björgólfur Thor Björgólfsson
Róbert Wessmann, fyrrverandi forstjóri Actavis, svarar Björgólfi Thor Björgólfssyni fullum hálsi í yfirlýsingu til fjölmiðla en Björgólfur fullyrðir á heimasíðu sinni, btb.is, að Róbert hafi verið vikið úr starfi árið 2008. Róbert segist hafa hætt störfum hjá Actavis til að snúa sér að eigin fjárfestingum. Aðra ástæðu fráhvarfs hans frá fyrirtækinu segir Róbert vera að hann hafi ekki haft áhuga á því að starfa frekar með Björgólfi. Á heimasíðu sinni segir Björgólfur að við afskráningu á Actavis í Kauphöll hafi orðið ljóst að rekstraráætlanir stjórnenda stóðust engan veginn og víðtæk gæðavandamál í verksmiðju félagsins í Bandaríkjunum hafi komið upp. Við úrlausn þessara vandamála hafi Róbert verið vikið úr starfi. Í yfirlýsingunni segir Róbert að störf hans hjá Actavis verði helst dæmd út frá því að á stuttum tíma hafi lítið íslenskt fyrirtæki orðið eitt af fimm stærstu í heimi á sínu sviði. Róbert segir það reyndar ekkert nýtt að Björgólfur fari með fleipur og varar við efni síðunnar sem sé vettvangur fyrir fjölmiðla- og áróðursmeistara Björgólfs til að hreinsa skaðað orðspor hans með því að finna blóraböggla fyrir því sem hefur farið miður í fjárfestingum hans. - shá
Mest lesið Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Viðskipti innlent Síðasti bíllinn fylltur á Ægisíðu Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Viðskipti innlent Ofurtollarnir lækkaðir tímabundið Viðskipti erlent Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Samstarf Ríkið eignast hlut í Norwegian Viðskipti erlent Svandís tekur við Fastus lausnum Viðskipti innlent Hrósæfingar fyrir vinnustaði, gryfjur og góð ráð Atvinnulíf Fleiri fréttir Síðasti bíllinn fylltur á Ægisíðu Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Til Samtaka atvinnulífsins eftir mánuð á auglýsingastofu Margrét hættir sem forstjóri Nova Sýkna í Samskipamálinu en Eimskip þarf samt að passa sig Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Áhrif tolla Trumps væru innan við eitt prósent Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Sólon lokað vegna gjaldþrots Slær bjartari tón þegar kemur að verðbólgunni AGS: Spenna í milliríkjaviðskiptum og bandarískir tollar gætu haft áhrif á Íslandi Sveinn verður viðskiptastjóri hjá Styrkás Ráðin hagfræðingur SVÞ Sjá meira
Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent
Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent