Viðskipti innlent

Hver grunnskólanemi kostar 1,2 milljónir á ári

Niðurstöður útreikninga Hagstofunnar eru að áætlaður árlegur rekstrarkostnaður á hvern nemanda í grunnskólum landsins , sem reknir eru af sveitarfélögum, sé 1,2 milljónir kr. í september 2010.

Fjallað er um málið á vefsíðu Hagstofunnar sem hefur reiknað út meðalrekstrarkostnað á hvern nemanda í öllum grunnskólum sem reknir eru af sveitarfélögum samkvæmt lögum og reglugerð um viðurkenningu grunnskóla og lágmarksframlög úr sveitarsjóði til slíkra skóla.

Meðalrekstrarkostnaður á hvern nemanda á grunnskólum árið 2009 reyndist vera 1.198.757 krónur og vegin meðalverðbreyting rekstrarkostnaðar frá árinu 2009 til september 2010 var metin um 1,0%.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×