Rannsaka tölvupósta hluthafa til Lárusar Welding Þorbjörn Þórðarson skrifar 27. mars 2010 18:45
Fjármálarannsóknarfyrirtækið Kroll hefur sýnt tölvupóstum á milli hluthafa og forstjóra Glitnis sérstakan áhuga. Niðurstöður Kroll verða birtar opinberlega þegar þær liggja fyrir. Skilanefnd Glitnis réð fjármálarannsóknarfyrirtækið Kroll til að fara yfir bókhald og millifærslur hjá Glitni banka fyrir bankahrunið. Um gríðarlega virt fyrirtæki er að ræða í viðskiptaheiminum á sviði bókhaldsrannsókna, eða því sem enskumælandi þjóðir kalla forensic accounting. Kroll hefur undanfarna mánuði tekið skýrslur af mörgum fyrrverandi starfsmönnum Glitnis og haft vinnuaðstöðu í höfuðstöðvum skilanefndar og slitastjórnar Glitnis í Sóltúni. Í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins er greint frá því að stór þáttur í rannsókn Kroll á Glitni banka snúi að tölvupósti starfsmanna og að sérstaka athygli hafi vakið tölvupóstsamskipti Lárusar Welding, sem var forstjóri Glitnis, við stærstu hluthafa bankans. Tölvupóstarnir sýni að ákvarðanir sem teknar voru í bankanum virðast hafa verið í efnislegu samræmi við hluti sem klomi fram í tölvupóstsamskiptum Lárusar við stóra hluthafa bankans, þótt þær skýringar hafi verið gefnar að ákvarðanir hafi verið teknar á faglegum forsendum. Þetta er í samræmi við heimildir fréttastofu Stöðvar 2. Fréttastofa Stöðvar 2 hefur undanfarið spurt Steinunni Guðbjartsdóttur, formann slitastjórnar Glitnis banka, um þessi tölvupóstsamskipti. Steinunn hefur hins vegar ítrekað neitað að tjá sig við fréttastofuna um þau þegar eftir því hefur verið leitað. Kroll hyggst birta niðurstöður sínar opinberlega í einhverjum mæli þegar þær liggja fyrir, að sögn Árna Tómassonar, formanns skilanefndar Glitnis. Árni vildi ekki tjá sig um tilvist tölvupóstanna í samtali við fréttastofu og sagði þær upplýsingar ekki frá sér komnar. Hugtakið skuggastjórnun hefur verið notað til að lýsa háttsemi þegar stór hluthafi, eða fulltrúi hans, segir stjórnanda í hlutafélagi hvaða ákvarðanir eigi að taka. Forstjóri hlutafélagsins er samt sá sem ber ábyrgð þar sem hann sækir umboð sitt til stjórnar hlutafélagsins sem er æðsta ákvörðunarvald þess milli aðalfunda. Hugtakið er að erlendri fyrirmynd, en kemur ekki fyrir í íslenskum lögum og jafnframt er þar ekki að finna ákvæði um hugsanlega refsiábyrgð skuggastjórnanda.
Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira