Alvarlegur trúnaðarbrestur á Logos Þorbjörn Þórðarson skrifar 27. mars 2010 00:01 Guðmundur J. Oddsson stýrði skrifstofu Logos í Lundúnum.
Alvarlegur trúnaðarbrestur varð þess valdandi að Guðmundur J. Oddsson, einn eigenda lögmannsstofunnar Logos og fyrrum stjórnarmaður í West Ham, lét af störfum hjá stofunni. Guðmundur var valinn einn af 40 athyglisverðustu erlendu lögfræðingunum í Bretlandi af tímaritinu Lawyer árið 2007. Guðmundur J. Oddsson var einn af eigendum Logos og stýrði skrifstofu lögmannsstofunnar í Lundúnum, en Logos er stærsta lögmannsstofa á Íslandi með yfir fjörutíu lögmenn og skrifstofur í Reykjavík, Lundúnum og Kaupmannahöfn. Guðmundur var á árinu 2007 valinn einn af athyglisverðustu erlendu lögfræðingunum í Bretlandi af vikuritinu The Lawyer, sem er fagrit breskra lögfræðinga, en blaðið birti þá lista yfir þá fjörutíu útlendu lögfræðinga sem blaðið taldi að hefðu látið mest að sér kveða. Guðmundur var í stjórn West Ham fyrir Björgólf Guðmundsson og var lögmaður Ástralans Steve Cosser, sem á síðasta ári ætlaði að kaupa Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, en þurfti að lúta í lægra haldi fyrir Óskari Magnússyni og meðreiðarsveinum hans. Logos hefur verið í umræðunni í vetur vegna húsleita sem framkvæmdar hafa verið á skrifstofum lögmannsstofunnar í Efstaleiti vegna rannsókna á málum umbjóðenda stofunnar. Meðal mála sem tengjast Logos er rannsókn embættis sérstaks saksóknara á kaupum sjeiksins frá Katar, Al Thani, á fimm prósentna hlut í Kaupþingi haustið 2008. Guðmundur hefur réttarstöðu grunaðs manns vegna þeirra rannsóknar, en hann var í stjórn Q Iceland Finance ehf. félagi sjeiksins sem keypti hlutabréfin hinn 25. september 2008. Eftir því sem fréttastofa kemst var Guðmundur ekki látinn hætta af þeirri ástæðu. Samkvæmt heimildum fréttastofu var tölvupóstur sendur á starfsmenn í febrúar síðastliðnum þegar Guðmundur lét af störfum og sú skýring gefin að trúnaðarbrestur hefði orðið milli hans og annarra eigenda og því hefði það orðið samkomulag um að Guðmundur léti af störfum. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um alvarlegan trúnaðarbrest að ræða, en ekki fékkst upp gefið í hverju hann væri fólginn. Ekki náðist í Guðmund J. Oddsson þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Gunnar Sturluson, framkvæmdastjóri Logos, sagði í samtali við fréttastofu í febrúar síðastliðnum að enginn tölvupóstur hefði verið sendur og ekki hefði verið um trúnaðarbrest að ræða. Það stangast á við áreiðanlegar heimildir fréttastofu. Eigendur Logos skiptast nú á að stýra skrifstofunni í Lundúnum með tímabundinni viðveru, samkvæmt upplýsingum fréttastofu.
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira