Samkomulag um fjármálastöðugleika undirritað 17. ágúst 2010 10:40 MYND/365
Í dag gengur í gildi samkomulag um samvinnu Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna yfir landamæri til að tryggja fjármálastöðugleika og samhæfa viðbrögð við fjármálaáfalli sem snertir fleiri en eitt ríki. Í tilkynningu frá Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu segir að samkomulagið hafi verið undirritað af fulltrúum fagráðuneyta, seðlabanka og fjármálaeftirlits Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Lettlands, Litháen, Noregs, Svíþjóðar auk Íslands. „Með samkomulaginu er komið á fót fyrsta evrópska samstarfshópnum á grundvelli samkomulags ríkja innan EES um samvinnu til að tryggja fjármálastöðugleika yfir landamæri," segir ennfremur. „Þannig eru stjórnvöld Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna fyrst til að innleiða ákvæði þessa samkomulags EES sem undirritað var í júní 2008." Bent er á að samkomulagið sé ekki lagalega bindandi en á grundvelli þess verði unnt að efla samvinnu, samhæfa viðbrögð og vinnubrögð þegar hætta steðjar að, meðal annars með betri upplýsingagjöf milli stofnana. „Fjármálakerfi Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna hafa á síðari árum orðið mjög samofin. Aukin þörf er því á að auka samvinnu eftirlitsstofnana til að tryggja fjármálastöðugleika. Markmið stjórnvalda ríkjanna er að draga úr hættu á því að fjármálakreppa kunni að breiða úr sér yfir landamæri. Ástand sem bundið er við einstakt ríki fellur ekki undir samkomulagið." Að lokum segir að settur verði á fót samráðshópur aðildarríkjanna um fjármálastöðugleika og munu löndin skiptast á að gegna formennsku í hópnum. Fulltrúi efnahags- og viðskiptaráðuneytis Danmerkur mun verða fyrsti formaður hópsins.
Mest lesið Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Viðskipti innlent „Þetta er bara algjörlega galið“ Neytendur Jólakjötið töluvert dýrara í ár Neytendur Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Viðskipti innlent Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Neytendur Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Viðskipti innlent Skipta dekkin máli? Samstarf Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Sjá meira