Kaupendur Tals með milljarða milli handanna 23. júní 2010 20:00 Mynd/Arnþór Birkisson
Sjóður undir stjórn Auðar Capital hefur keypt fjarskiptafyrirtækið Tal. Þetta er fjórða og jafnframt stærsta fjárfesting sjóðsins en fjárfestingageta hans er á þriðja milljarð króna. Sjóðurinn heitir Auður einn og er í eigu um 20 aðila. Þeir eru Auður Capital, flestir stærstu lífeyrissjóðirnir auk efnaðra einstaklinga og stofnanafjárfesta. 3,2 milljörðum króna var safnað í sjóðinn í upphafi árs 2008. Arna Harðardóttir, framkvæmdastjóri sjóðsins segir að sjóðurinn hafi ráðstafað litlum hluta af fjárhæðinni og hann sé ekki skuldsettur. Stjórnendur sjóðsins hafi því augun opin fyrir fjárfestingatækifærum. Teymi skuldbatt sig til að selja 51 prósents eignarhlut sinn í Tali með sátt sem það gerði við Samkeppniseftirlitið síðastliðið sumar vegna samkeppnisbrota sem fyrirtækið varð uppvíst að sem meirihlutaeigandi í Tali. Aðrir hlutahafar kusu að selja sömuleiðis en þeir eru NBI hf., Hermann Jónasson, forstjóri Tals, og Fjallaskarð, sem var í eigu Jóhanns Óla Guðmundssonar kaupsýslumanns. Arna segir að með kaupunum á Tali sé horft til vaxandi fjarskiptamarkaðar. En kostnaður vegna fjarskipta sé orðinn stór hluti af útgjöldum heimila og fyrirtækja. Ekki liggur fyrir hve lengi sjóðurinn muni eiga Tal en hin almenna stefna sé að eiga í félögum í 3-5 ár. Ekki liggja enn fyrir breytingar á rekstrinum, að sögn Örnu. Ekki fékkst upplýst hve mörg tilboð bárust í Tal en þau voru að sögn nokkur.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bein útsending: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Fleiri fréttir Birta gott uppgjör og hjóla í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Sjá meira