Óvissa takmarkar svigrúm peningastefnunefndar 23. júní 2010 11:21 „
Svigrúm peningastefnunefndar takmarkast enn af óvissu um aðgengi Íslands að alþjóðlegum fjármálamörkuðum í framtíðinni og áformum um afnám hafta á fjármagnshreyfingar. Aukin óvissa af völdum nýlegra dóma Hæstaréttar um lögmæti gengistryggðra lána gæti grafið undan trausti og takmarkað svigrúm peningastefnunnar frekar, verði ekki brugðist við vandanum í tíma."Þetta kemur fram í yfirlýsingu Peningastefnunefndar í tengslum við stýrivaxtalækkun hennar um 0,5 prósentustig í morgun.Már Guðmundsson seðlabankastjóri fór í gegnum helstu þætti málsins. Hann segir að ástæður þess að áfram er dregið úr peningalegu aðhaldi eru betri grunnþættir og traustara aðgengi að alþjóðlegum fjármálamörkuðum í gegnum tvíhliða og marghliða samninga, sem hafa stuðlað að styrkingu krónunnar og lækkun áhættuálags á íslenskar fjárskuldbindingar.„Þessi þróun ætti jafnframt að auðvelda Seðlabankanum að hefja afnám hafta á fjármagnshreyfingar. Fyrstu skrefin væri hægt að taka tiltölulega fljótlega eftir að þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er lokið.Í framtíðinni mun Seðlabankinn þurfa að auka eigin gjaldeyrisforða í stað forða sem aflað hefur verið með lántöku. Gengishækkun krónu og lækkun áhættuálags á íslenskar fjárskuldbindingar gætu gefið svigrúm til hóflegra gjaldeyriskaupa. Tímasetning og magn slíkra kaupa verða ákveðin með tilliti til þess að áhrif á krónuna verði sem minnst. Engar ákvarðanir um slík kaup verða þó teknar fyrir fund peningastefnunefndar í ágúst.Eins og áður telur nefndin forsendur áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds vera til staðar, haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist og hjaðni verðbólga eins og spáð er. Nefndin er reiðubúin til að breyta aðhaldi peningastefnunnar eins og nauðsynlegt er með hliðsjón af því tímabundna markmiði hennar að stuðla að gengisstöðugleika og í því skyni að tryggja að verðbólga verði nálægt markmiði til lengri tíma litið," segir í yfirlýsingunni.
Mest lesið „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira