Kortaþjónustan ætlar í mál vegna samkeppnisbrota 23. júní 2010 10:00 Kreditkort. Myndin er úr safni.
Kortaþjónustan undirbýr nú málssókn á hendur Valitor, Borgun og Fjölgreiðslumiðlun vegna samkeppnisbrota en Kortaþjónustan fékk á dögunum aðgang að gögnum sem Samkeppniseftirlitið viðaði að sér í rannsókn á málinu árið 2006. Félögin greiddu sekt vegna brots á samkeppnislögum með því að hafa markvisst unnið gegn því Kortaþjónustan næði fótfestu á markaði. Alls þurftu félögin að greiða 735 milljónir króna í sekt árið 2008 til samkeppnisyfirvalda, sem er hæsta sekt fyrir viðurkennt samkeppnislagabrot hér á landi. Samkeppniseftirlitið úrskurðaði fyrir skömmu að Kortaþjónustan hefði rétt á að fá afrit af gögnunum. „Það er með ólíkindum að lesa í gegnum málsgögnin og sjá hvernig þessi félög höguðu sér þegar við komum á markaðinn. Brotaviljinn var einbeittur og öllum brögðum beitt til að verja einokunarstöðuna og bola okkur burt af markaðnum. Gögnin skýra ýmislegt og við sjáum nú að ýmsar hindranir sem við höfum þurft að glíma við frá stofnun félagsins voru til komnar vegna umfangsmikilla ólöglegra aðgerða Valitor, Borgunar og Fjölgreiðslumiðlunar," segir Jóhannes Ingi Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar. Hann segir að Kortaþjónustan sé ekki sátt við að þá refsingu sem fyrirtækin hafa þegar sætt og þess vegna undirbúi Kortaþjónustan einkamál á hendur fyrirtækjanna. „Það er ekki nóg að þau sættist við samkeppnisyfirvöld og skipti um nafn - okkar tjón er enn óbætt og því munum við leita réttar okkar," segir Jóhannes að lokum.
Mest lesið Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Fleiri fréttir Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Sjá meira