Viðsnúningur hjá Strætó, hagnaður tæpar 300 milljónir 2. mars 2010 10:57
Strætó bs. hagnaðist á síðasta ári um 296 milljónir króna eftir fjármagnsliði, en hagnaður af reglulegri starfsemi nam rúmum 400 milljónum króna.Í tilkynningu segir að verulegur viðsnúningur hefur orðið á neikvæðri stöðu eigin fjár og er eigið fé neikvætt í árslok um u.þ.b. 150 milljónir króna, en var neikvætt um 638 milljónir í lok árs 2008. Þetta kom fram á síðasta stjórnarfundi en þá var ársreikningur byggðasamlagsins fyrir árið 2009 tekinn fyrir og samþykktur.Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., segir að algjör viðsnúningur hafi orðið í rekstri og eiginfjárstöðu byggðasamlagsins á liðnu ári. „Nú er mikilvægt að sveitarfélögin standi vörð um þá jákvæðu þróun sem orðið hefur í rekstri samlagsins að undanförnu og að stefnt verði að því að staða eigin fjár verði orðin viðunandi á allra næstu misserum," segir Reynir í tilkynningunni.Hann segir að þessi góða afkoma síðasta árs geri að verkum að hægt sé að halda uppi óbreyttu þjónustustigi þrátt fyrir kostnaðarverðshækkarnir sem m.a. skýrast af áframhaldandi mikilli verðbólgu, veiku gengi krónunnar og erfiðri fjárhagsstöðu sveitarfélaganna sem munu ekki þurfa að auka framlög sín til byggðasamlagsins. „Áætlanir ársins 2010 eru byggðar upp með þetta í huga - og þannig má segja að góð afkoma ársins 2009 fjármagni að hluta rekstur ársins 2010. Þegar áföllin verða höfum við örlítið svigrúm til að bregðast við," segir Reynir.Það sem hins vegar ógnar rekstrinum á þessu ári eru nýafstaðnar skattkerfisbreytingar, sem voru ekki fyrirséðar þegar fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 var samþykkt - en áætlað er að áhrif breytinganna nemi um 50 milljónum króna á árinu. Þar vegur þyngst hækkun tryggingagjalds og upptaka kolefnisgjalds - og þar á eftir hækkun virðisaukaskatts, olíugjalds og bifreiðagjalda.Aukin verðbólga og hækkun gasolíuverðs á heimsmarkaði setur einnig stórt strik í reikninginn. Verðbólguhraði og vaxtastig eru sömuleiðis áhyggjuefni, að ógleymdri fjárhagsstöðu sveitarfélagsins Álftaness. Framangreindar breytingar leiða til ákveðinnar óvissu í fjárhagsáætlun Strætó bs. fyrir árið 2010 og er gert ráð fyrir að heildaráhrif þeirra nemi ekki minna en 75-80 milljónum króna á árinu. Því er ljóst að rekstur félagsins verður áfram nokkuð þungur.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira