Seðlabankinn svarar ekki efnahags- og viðskiptaráðuneyti 17. mars 2010 09:27 „
Í tilefni af þessari fyrirspurn óskaði ráðuneytið eftir umsögn Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins. Svar ráðuneytisins er byggt á svari Fjármálaeftirlitsins þar sem Seðlabanki Íslands hefur enn ekki svarað ráðuneytinu þrátt fyrir töluverða eftirleitan," segir í svari Gylfa Magnússonar efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Ásbjörns Óttarssonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins á Alþingi um aðgerðir vegna meintra brota á gjaldeyrisreglum.Fyrirspurn Ásbjörn var í tveimur liðum. Annarsvegar um aðgerðir sem gripið hefur verið til af hálfu stjórnvalda vegna meintra brota á gjaldeyrisreglum og hinsvegar um hvað unnt sé að gera til að koma í veg fyrir frekari brot.Í svarinu segir að Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands hafi gert með sér samstarfssamning um samvinnu vegna grunsemda um brot gegn lögum um gjaldeyrsimál og reglum settum á grundvelli þeirra. Með honum leitast stofnanirnar við að skýra verksvið sitt sem mest og koma til móts við hvor aðra varðandi aðstoð og nýtingu sérfræðiaðstoðar. Fjármálaeftirlitið er einnig í góðu samstarfi við efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra vegna rannsókna á meintum brotum.Stofnuð hefur verið sérstök deild í Seðlabankanum til að fylgjast með reglum um gjaldeyrismál, svokallað gjaldeyriseftirlit, og ræður sú deild yfir þremur til fjórum starfsmönnum.Seðlabanki Íslands hefur tilkynnt Fjármálaeftirlitinu um meint brot 28 lögaðila. Fjármálaeftirlitinu ber að kæra meiri háttar mál til lögreglu samkvæmt lögum um gjaldeyrismál en minni háttar málum lýkur stofnunin með álagningu stjórnvaldssekta eða gerð sátta.Reynslan hér og í öðrum löndum sýnir að mikilvægt er að reglur um gjaldeyrismál séu í stöðugri endurskoðun þegar jafnvíðtækar hömlur eru á slíkri starfsemi eins og raunin er hér á landi. Til að koma í veg fyrir brot á gjaldeyrisreglum er því mikilvægt að til staðar sé öflugt eftirlit og að reglur um gjaldeyrismál séu bæði sveigjanlegar og auðveldar í framkvæmd.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira