Fá skattahandvömm bankanna í bakið Þorbjörn Þórðarson skrifar 17. mars 2010 12:15
Bankarnir létu hjá líða að greiða skatta af afleiðuviðskiptum viðskiptavina sinna og nú eru viðskiptavinirnir að fá það í bakið. Þeir þúsund einstaklingar sem fá bréf frá skattrannsóknarstjóra vegna vantaldra skatttekna geta hins vegar borið ákvörðun um skattfjárhæð undir yfirskattanefnd og lögmæti skattskyldunnar undir dómstóla. Skattur var ekki greiddur af afleiðuviðskiptum bankanna upp á hundruð milljarða áður en bankarnir hrundu samkvæmt rannsókn á vegum skattrannsóknarstjóra, eins og við greindum frá í síðustu viku. Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, sagði á blaðamannafundi um málið í gær í gær að inni í bönkunum hafi í raun verið um að ræða "svart skattkerfi," eins og hún orðaði það og fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Lögum samkvæmt er farið með staðgreiðslu af afleiðuviðskiptum viðskiptavina fjármálafyrirtækja eins og vaxtatekjur. Þetta virkar þannig að ef viðskiptavinur hagnast á afleiðuviðskiptum þá ber bankanum sem annast viðskiptin að halda eftir staðgreiðslu af þeim og greiða til skattyfirvalda, að sögn Elínar Árnadóttur, yfirmanns skatta- og lögfræðisviðs PricewaterhouseCoopers. Að hennar sögn áttu einstaklingar að greiða tíu prósent tekjuskatt af þeim, en átján prósent eins og lögin eru í dag. Bönkunum hafi því borið skylda að halda þessari staðgreiðslu til haga, að sögn Elínar. Hafi bankarnir ekki haldið eftir þessari staðgreiðslu hafi einstaklingunum hins vegar borið að sjá til þess að skatturinn yrði greiddur. Yfir þúsund einstaklingar munu á næstu vikum frá bréf frá skattrannsóknarstjóra vegna afleiðuviðskiptanna. Greint var frá því í gær að í nánast engu tilviki hefðu bankarnir haldið eftir skatti vegna þessarar tegundar af viðskiptum. Með öðrum orðum, svo virðist sem verið sé að endurákvarða skatta á einstaklinga upp á tugi milljarða þar sem bankarnir létu hjá líða að halda eftir skattskyldum hagnaði. Elín segir að í mörgum tilvikum séu afleiðuviðskiptin flókin og fólk hafi í einhverjum tilvikum verið í vandræðum um hvernig eigi að gera upp tekjur af þeim. Hún segir að þær upphæðir sem skattrannsóknarstjóri telji að ekki hafi verið taldar fram hafi komið sér mjög á óvart. Þessir einstaklingar sem munu fá bréf frá skattrannsóknarstjóra geta borið ágreining um skattfjárhæðina, þ.e endurálagninguna, undir yfirskattanefnd. Hins vegar geta þeir alltaf borið ágreining um skattskylduna sem slíka undir dómstóla.
Mest lesið „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Sjá meira