Keypti lúxusbíla fyrir starfsmenn fyrir tugi milljóna Þorbjörn Þórðarson skrifar 21. desember 2010 18:45
Icelandair Group og dótturfélög þess keyptu lúxusbifreiðar fyrir stjórnendur sína og lykilstarfsmenn fyrir marga tugi milljóna króna á þessu ári, eftir að Framtakssjóður lífeyrissjóðanna lagði fyrirtækinu til nýtt hlutafé. Ellefu lúxusbílar keyptir fyrir starfsmenn Stöð 2 fór yfir skráningar fyrirtækisins og dótturfélaga þess í Ökutækjaskrá eftir að Framtakssjóður Íslands, sem er í eigu nokkurra lífeyrissjóða, keypti hlut í fyrirtækinu fyrir þrjá milljarða króna í formi nýs hlutafjár í júní síðastliðnum. Fréttastofa tók eingöngu saman þá lúxusjeppa og aðra einkabíla sem Icelandair Group og dótturfélög fyrirtækisins keyptu, en ekki vinnubíla, eins og pallbíla, sendibíla og smærri bíla. Þessi athugun leiddi í ljós í ljós að keyptir voru ellefu bílar fyrir starfsmenn frá því að lífeyrissjóðirnir fjárfestu í fyrirtækinu í júní og til dagsins í dag. Í vafatilvikum fletti fréttastofa bílunum sérstaklega upp með það fyrir augum að taka ekki með neina vinnubíla í samantektina. Um er að ræða bifreiðar eins og þónokkra Toyota Land Cruiser, Land Rover, Nissan Pathfinder jeppa, Lexus RX350, Audi A6 og Volvo S60. Samanlagt verðmæti þessara bifreiða nálgast eitt hundrað milljónir króna miðað við skráð verðmæti á vef Bílgreinasambandsins. Ef borin eru saman kaup á einkabílum í dýrari kantinum á þessu ári eftir endurfjármögnun Icelandair Group og bílakaup á síðasta ári sést að hjá flestum dótturfélögum samstæðunnar voru ekki keyptir bílar í fyrra og því er um nokkra aukningu að ræða.Langmest keypt í góðærinu Við samantekt úr Ökutækjaskrá kom ekki sérstaklega á óvart að langflestar bifreiðar voru keyptar á árinu 2007 og 2008, fyrir bankahrunið. Þar voru jafnframt flestar nýskráningar. En er eitthvað samhengi á milli bættrar lausafjárstöðu Icelandair og þessara bílakaupa fyrir starfsmenn á árinu 2010? „Nei, það er ekkert samhengi þar á milli. Þarna er einfaldlega um að ræða endurnýjun á leigusamningum sem voru að falla úr gildi. Ýmist sömdu menn um nýja leigusamninga eða kaup á bílum," segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group. Hann segir að enginn nýskráður bíll hafi verið tekinn inn og horft hafi verið sérstaklega til þess að taka inn nokkurra ára gamla bíla. Björgólfur fullyrðir að endurnýjun á bílum starfsmanna á þessu ári hafi ekki haft í för með sér teljandi viðbótarkostnað fyrir fyrirtækið og segir raunar að slíkt hafi haft í för með sér lækkun á kostnaði. Rekstur Icelandair Group hefur gengið vel það sem af er ári. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi nam 5,1 milljarði króna, en samstæðan tapaði 10,6 milljörðum króna í fyrra.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira