Vill að hreinsað verði til í ákærunni 21. desember 2010 06:00 Baldur Guðlaugsson
Ógrynni af nýjum upplýsingum hefur komið fram í máli Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, við rannsókn lögreglu og hjá Fjármálaeftirlitinu (FME) frá því að FME ákvað að hætta fyrri rannsókn sinni á málinu vorið 2009. Þetta sagði Björn Þorvaldsson, sem fer með málið fyrir hönd sérstaks saksóknara, fyrir dómi í gær þar sem tekist var á um það hvort vísa skyldi málinu frá dómi. Baldur er ákærður fyrir að hafa nýtt sér innherjaupplýsingar um stöðu Landsbankans sem hann öðlaðist í starfi sínu sem ráðuneytisstjóri þegar hann seldi bréf í bankanum fyrir 192 milljónir rétt fyrir bankahrun. Karl Axelsson, lögmaður Baldurs, krefst þess að málinu verði vísað frá þar sem ekki megi rannsaka sama málið tvisvar. FME hafi lokið rannsókn á því og nýja málið byggi nær eingöngu á sömu upplýsingum og hið fyrra. Þessu vísar Björn á bug. Karl fór fram á að ef málinu yrði ekki vísað frá yrði að minnsta kosti hreinsað til í ákærunni og þeir liðir hennar felldir út sem einungis byggðust á upplýsingum sem lágu fyrir við fyrri rannsókn. Björn benti á að ekki væri ákært í mörgum liðum, heldur væri einfaldlega gert grein fyrir upplýsingunum sem Baldur bjó yfir í sex liðum. Úrskurðar um frávísunarkröfuna er að vænta eftir áramót. - sh
Fréttir Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fleiri fréttir Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Sjá meira