Samherjatogari skilar 3,3 milljörðum á árinu 21. desember 2010 11:45
Vilhelm Þorsteinsson EA 11 kom í land með fullfermi af frystum síldarflökum í gær og lauk þar með síðustu veiðiferð þessa árs. Áhöfnin á Vilhelm Þorsteinssyni er búin að veiða um 50.000 tonn og skilar þjóðarbúinu um 3,3 milljörðum kr. á þessu ári, sem er met í aflaverðmæti. Fjallað er um málið á vefsíðu Samherja. Þar segir að skipstjórinn Guðmundur Þ. Jónsson hafði fleiri ástæður til að fagna en hann varð fimmtugur á sunnudaginn. Veglega var tekið á móti Guðmundi og áhöfn hans er skipið lagði að bryggju á Akureyri í gær, með dýrindis afmælistertum og að sjálfsögðu var afmælissöngurinn sunginn skipstjóranum til heiðurs. Vilhelm Þorsteinsson veiðir uppsjávarfisk, síld, kolmunna, makríl og loðnu. Skipið er að koma frá veiðum við Norður-Noreg með fullt skip, 570-580 tonn af síldarflökum sem fara á markað í Póllandi og Frakklandi. Það er allt unnið um borð og 90-95% af því fer til manneldis. Í áhöfn eru 24 skipverjar hverju sinni en um 40 sjómenn skiptast á um að vera um borð. Vilhelm heldur aftur af stað 2. janúar á loðnuveiðar.
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira