Tollstjóri getur krafist gjaldþrotaskipta Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 16. maí 2010 19:24
Tollstjóri, fyrir hönd skattrannsóknarstjóra, getur krafist þess að fyrrverandi forsvarsmenn FL Group verði teknir til gjaldþrotaskipta. Enginn þeirra á eignir upp í kyrrsetningarkröfu skattrannsóknarstjóra vegna meintrar refsiverðar háttsemi þeirra á lögum um virðisaukaskatt. Skattrannsóknarstjóri fór nýlega fram á að eignir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Hannesar Smárasonar, Jóns Sigurðssonar og Skarphéðins Berg Steinarssonar yrðu kyrrsettar. Þeir voru allir í forsvari fyrir FL Group á árunum 2006 og 2007 og eru grunaðir um refsiverða háttsemi í tengslum við brot félagsins á lögum um virðisaukaskatt. Samtals nam kyrrsetningarkrafan nokkur hundruð milljónum króna. Eignir fjórmenninganna hrökkva ekki upp í kröfuna. Um 93 milljónir vantar upp á hjá Jóni Ásgeiri og tæplega 140 milljónir króna hjá Hannesi. Skattrannsóknarstjóri frestaði gerðunum að öðru leyti til þess að freista þess að hitta þá félaga fyrir. Hjá Jóni Sigurðssyni, forstjóra Stoða, áður FL Group, voru eignir kyrrsettar fyrir um 71 milljón króna. Hann lagði til að um þrjátíu milljóna króna krafa hans í þrotabú Landsbankans í Lúxemborg yrði kyrrsett. Því var hafnað. Eignir Jóns duga ekki til tryggingar kröfunnar. Kyrrsetningarbeiðninni var því lokið án árangurs. Jón hyggst leita til héraðsdóms til að fá gerðinni hnekkt. Skattrannsóknarstjóri krafðist þess að kyrrsettar yrðu eignir hjá Skarphéðni Berg að fjárhæð 90 milljónum króna. Hann átti eignir fyrir 31 milljón króna. Gerðin var því lýst árangurslaus að hluta. Árangurslaus kyrrsetning hefur í flestu tilliti sömu áhrif og árangurslaust fjárnám. Við það fær gerðabeiðandi, sem er tollstjóri fyrir hönd skattrannsóknarstjóra, heimild til að óska eftir gjaldþrotaskiptum. Ekki náðist í Stefán Skjaldarson, skattrannsóknarstjóra, í dag.
Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira