Magma mun eignast bróðurhlutann í HS orku Heimir Már Pétursson skrifar 16. maí 2010 12:00 HS orka mun væntanlega komst í eigu Magma. Mynd/ Valgarður.
Fátt getur komið í veg fyrir að kanadíska fyrirtækið Magma Energy eignist 98 prósenta hluti í HS orku. Þar með yrði þriðja stærsta orkufyrirtæki landsins komið í eigu erlendra aðila. Guðbrandur Einarsson bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ segir þetta þýða að hagnaður af orkusölunni flytjist úr landi. Bæjarfélagið hafi með einkavæðingu á sínum tíma selt frá sér mjólkurkúna. Geysir Green Energy er íslenskt orkufyrirtæki sem ætlaði sér stóra hluti í orkuútrásinni en á nú í vök að verjast. Það er nú í eigu Atorku, Íslandsbanka og fleiri. Geysis Green á 52 prósenta hlut í HS orku en reynir nú að hámarka eignir sína með sölu þeirra. Þar bíður við dyrnar kanadíska fyrirtækið Magma Energy, sem í gegnum dótturfélag í Svíþjóð, Magma Energy Sweden, á nú þegar 46 prósenta hlut í HS orku. Fyrirtæki Magma í Svíþjóð var stofnað vegna þess að orkufyrirtæki utan evrópska efnahagssvæðisins meiga ekki eiga í íslenskum orkufyrirtækjum. Magma hefur gert tilboð í hlut Geysis Green og ef þau kaup ganga eftir á Magma Energy 98 prósent í HS orku. Guðbrandur Einarsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ segir að úr því sem komið er, geti fátt komið í veg fyrir söluna. Ef af sölunni verður segir Guðbrandur að hagnaður af rekstri HS Orku fari allur úr landi. Ef samningarnir ganga eftir verður þriðja stærsta orkufyrirtæki landsins komið í nær 100 prósent eigu erlendra aðila og yrði það í fyrsta skipti sem íslenskt orkufyrirtæki væri alfarið í erlendri eigu. En þar með eignaðist Magma virkjunina í Svartsengi sem og Reykjanesvirkjun og nýtingarrétt á allri orku sem kann að finnast á Reykjanesi næstu 45 árin að minnsta kosti. Hagnaðarvonin er mikil segir Guðbrandur, enda sé Ásgeir Margeirsson sem áður var forstjóri Geysis Green nú forstjóri hjá Magma. Fyrir einkavæðingu var Hitaveita Suðurnesja í eigu sveitarfélaganna á svæðinu.
Mest lesið Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Sjá meira