Þrír skulda um átta hundruð milljónir 26. ágúst 2010 05:45 Jón ásgeir jóhannesson
Ákveðið var á fundi skiptastjóra þrotabús BGE eignarhaldsfélags í gær að innheimta lán sem félagið veitti fyrrum starfsmönnum Baugs. Skuldin nemur um einum milljarði króna. Meginþungi skuldarinnar fellur á helstu fyrrverandi stjórnendur Baugs, Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi stjórnarformann Baugs, Gunnar Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra, og Stefán H. Hilmarsson, fyrrum aðstoðarforstjóra. Hann er nú fjármálastjóri 365 miðla. Þremenningarnir áttu samtals 76 prósenta hlut í félaginu en starfsmenn Baugs afganginn. BGE var stofnað árið 2003 utan um hlutafjáreign starfsmanna Baugs í Baugi. Kaupþing Búnaðarbanki lánaði BGE fé sem það lánaði áfram til starfsmanna til hlutabréfakaupanna. Skuldin liggur nú í bókum skilanefndar Kaupþings. Í ársreikningum BGE má sjá að BGE greiddi upp lánið við bankann og var skuldlaust við hann í lok árs 2007. Á sama tíma hækkaði skuld BGE gagnvart Baugi. Í árslok 2008 námu heildarskuldir BGE rúmum 2,9 milljörðum króna. Eina eign félagsins voru verðlaus hlutabréf í Baugi. Bjarni S. Ásgeirsson, skiptastjóri BGE eignarhaldsfélags, segir líklegt að einhverjir fyrrum starfsmenn Baugs semji um uppgjör skuldarinnar. Ekki megi útiloka að stærstu skuldamálin fari fyrir dómstóla. - jab
Mest lesið Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Viðskipti innlent Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Viðskipti innlent Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Atvinnulíf Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Viðskipti innlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Viðskipti innlent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Viðskipti innlent Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Viðskipti innlent Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Samstarf Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Fleiri fréttir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Sjá meira