Vísaði gróusögum á bug um áramót 6. janúar 2010 05:00 Þorvaldur Lúðvík
Saga Capital hefur ekki fellt niður skuldir starfsmanna sinna líkt og Kaupþing og þá hafa engir fjármunir farið frá ríkinu til Saga Capital. Þetta er meðal þess sem fram kemur í bréfi frá Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, forstjóra bankans, til hluthafa á gamlársdag. Bréfið er, að sögn, skrifað þar sem borið hefur á misskilningi og meiðandi umfjöllun um bankann sem nauðsynlegt sé að leiðrétta. Þar kemur fram að bankinn færði um 41 prósent útlána, jafnvirði 2,6 milljarða króna, á varúðarreikning og þar af nemi varúðarniðurfærslur vegna lána og ábyrgða starfsmanna 450 milljónum króna. Þessi mikla varúðarfærsla sé gerð í ljósi ástandsins í þjóðfélaginu, engar skuldir, hvorki hjá starfsmönnum né öðrum, hafi verið felldar niður, lánin séu innheimt áfram og það verði gert þar til sannað þyki að viðkomandi sé kominn í þrot. Þá vísaði Þorvaldur því á bug í bréfinu að fjármunir hafi farið frá ríki til fjárfestingarbankans. Í kjölfar hrunsins hafi skuldir fjármálafyrirtækja við Seðlabankann verið yfirteknar af ríkissjóði sem, til að tryggja endurgreiðslu, hafi boðið þeim fyrirtækjum sem stóðust mat á lánshæfi að semja um skuldir sínar á lágum vöxtum. Ekkert nýtt lán var veitt, eingöngu var um skuldbreytingu að ræða, segir í bréfinu. Með samningnum hafi verið tryggt að engir fjármunir hafi farið frá ríki til Saga Capital né sé ríkissjóður í neinum ábyrgðum vegna innstæðna hjá bankanum. Standi fjárfestingarbankinn hins vegar ekki við skuldbindingar sínar eða fari eiginfjárhlutfall undir ákveðin viðmið geti ríkið breytt skuldinni í hlutafé í Saga Capital. - jab
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira