Viðskipti innlent

75 fyrirtæki á hausinn í nóvember

MYND/GVA

Í nóvember 2009 voru 75 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 73 fyrirtæki í nóvember 2008, sem jafngildir tæplega 3% fjölgun milli ára. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar en eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot eða 26 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og 11 gjaldþrot í Heild- og smásöluverslun og fyrirtækjum sem sinna viðgerðum á vélknúnum ökutækjum.

Fyrstu 11 mánuði ársins 2009 er fjöldi gjaldþrota 823 en fyrstu ellefu mánuði ársins 2008 voru 673 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem jafngildir tæplega 23% aukningu milli ára.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×