Viðsnúningur ríkissjóðs til hins verra orðinn 130 milljarðar 6. janúar 2010 18:31
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu ellefu mánuði ársins 2009 liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu er handbært fé frá rekstri neikvætt um tæpa 123 milljarða kr., sem er 130,1 milljörðum kr. lakari útkoma en á sama tímabili í fyrra. Tekjur reyndust 25,1 milljarða kr. minni en í fyrra á meðan gjöldin jukust um 91,4 milljarða kr. Þetta kemur fram á vefsíðu fjármálaráðuneytisins þar sem greint er frá greiðsluuppgjöri ríkissjóðs fyrir fyrrgreint tímabil. Innheimtar tekjur ríkissjóðs á fyrstu ellefu mánuðum ársins voru tæpir 368 milljarða kr. sem er 25 milljarða kr. minna en á sama tíma árið 2008. Tekjurnar eru meiri en í áætlun fjárlaga en hún hljóðaði upp á rúma 354 milljarða kr. fyrir þetta tímabil. Þar var þó ekki reiknað með þeim viðbótar tekjuöflunaraðgerðum sem gripið var til í maí og júní til að bregðast við miklum tekjusamdrætti í byrjun ársins. Aðgerðirnar hafa skilað þeim árangri að frávik tekna frá áætlun hefur skipt um formerki og orðið jákvætt, nú þegar aðeins vantar upplýsingar um innheimtu desembermánaðar. Greidd gjöld námu 483,9 milljörðum kr. og jukust um 91,4 milljarða kr. frá fyrra ári, eða 23,3%. Milli ára jukust vaxtagjöld ríkissjóðs mest eða um 45,2 milljarða kr. Þá hækkuðu útgjöld til almannatrygginga og velferðarmála um 23,6 milljarða kr. sem skýrist að mestu með 20,7 milljarða kr. hækkun útgjalda Atvinnuleysistryggingasjóðs, 3,4 milljarðs kr. hækkun á vaxtabótum og 1,2 milljarða kr. hækkun á barnabótum.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira