Ólíklegt að endurskoðun AGS fari fram á tilsettum tíma 6. janúar 2010 19:32 Gylfi Magnússon Mynd/Anton Brink
Hverfandi líkur eru á því að önnur endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fari fram á tilsettum tíma að mati efnahags- og viðskiptaráðherra. Hann segir að erlendir fjárfestar haldi að sér höndum vegna þeirrar óvissu sem upp er komin hér á landi. Til stóð að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tæki fyrir aðra endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands í loka janúarmánaðar. Norðmenn hafa þegar lýst því yfir að þeir ætla ekki að afgreiða fyrirhuguð lán til Íslands fyrr en búið er að ganga frá Icesave málinu. Svíar hafa einnig tekið sama streng. Án norrænu lánanna verður ekki hægt að ljúka endurskoðun efnahagsáætlunarinnar. Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir að hverfandi líkur séu á því að endurskoðunin fari fram samkvæmt áætlun. Gylfi segir að synjun forseta á Icesave lögunum hafi sent gríðarlega neikvæð skilaboð til útlanda. Erlendir fjárfestar sem hingað ætluðu að koma haldi nú að sér höndum. „Meðal annars ýmsir sem sáu sér sóknarfæri á Íslandi í ljósi þess að gengið er orðið mun lægra en það var á árum áður. Það skapar ýmis tækifæri fyrir útflutning og reyndar einnig fyrir fyrirtæki sem keppa við innflutning. Ég er ansi hræddur um að allavega þeir sem ætluðu að koma með erlent fé inn í slíkar áætlanir hugsi sig um tvisvar og allavega bíði og vonandi hætti ekki við," segir Gylfi.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira