Líka reynt að hækka gengið í Glitni og Landsbankanum 10. maí 2010 06:30 Sigurjón Þ. Árnason fyrrverandi bankastjóri Landsbankans.
Sérstakur saksóknari hefur til meðferðar mál er varða markaðsmisnotkun Glitnis og Landsbankans. Viðskipti banka sem hafa þann eina tilgang að ýta undir gengi hlutabréfa bankans nefnast markaðsmisnotkun. Rannsókn sérstaks saksóknara, sem leiddi til gæsluvarðhaldsúrskurða yfir Hreiðari Má Sigurðssyni og Magnúsi Guðmundssyni, snýst um slíka markaðsmisnotkun. Eru þeir grunaðir um að standa að baki viðskiptum í þeim tilgangi fyrir hátt í hundrað milljarða króna. Rannsóknarnefnd Alþingis tilkynnti saksóknara um nokkur mál er varða markaðsmisnotkun. Snúa þau að lánveitingum bankanna til slíkra viðskipta, svokölluðum eigin viðskiptum bankanna og persónulegum hag starfsmanna bankanna af markaðsmisnotkun. Rannsóknarnefndin telur yfirgnæfandi líkur á að þau viðskipti bankanna með eigin hlutabréf sem greining nefndarinnar náði til hafi verið framkvæmd í þeim tilgangi að gefa misvísandi upplýsingar um eftirspurn eftir hlutabréfum og hafa þannig áhrif á verð þeirra. Í mörgum tilvikum hafi bankarnir veitt völdum viðskiptavinum lán á hagstæðum kjörum og jafnvel án trygginga til að liðka fyrir slíkum viðskiptum. Þó Kaupþing hafi verið umsvifamest í markaðsmisnotkun beittu Glitnir og Landsbankinn sömu brögðum. Um þá banka segir í skýrslunni að inngrip þeirra í viðskipti með hlutabréf í þeim hafi orðið til þess að skekkja þá mynd sem hluthafar höfðu um verðmæti bréfa sinna. Hlutirnir voru þannig taldir verðmeiri en þeir voru í raun og nýir hluthafar á þeim tíma keyptu hluti á of háu verði. Að auki kunna aðrir viðskiptamenn að hafa orðið fyrir skaða þar eð þeir töldu verðþróunina vera til marks um að staða bankans væri betri en síðar kom á daginn. Árið 2008 vísaði Kauphöllin ellefu málum þar sem grunur lék á markaðsmisnotkun til Fjármálaeftirlitsins. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Sjá meira