Góður hagnaður af rekstri Orkubús Vestfjarða í fyrra 10. maí 2010 15:47
Árið 2009 var hagstætt fyrir rekstur Orkubús Vestfjarða og varð hagnaður af venjubundnum rekstri fimmta árið í röð. Hagnaður ársins nam 234 milljónir kr. eftir skatta. Framleiðsla vatnsaflsvirkjana Orkubúsins var í meðallagi og ekki urðu nein stærri rekstraráföll í flutningskerfum Orkubúsins.Fjallað er um málið á vefsíðu Orkubúsins. Þar segir að á árinu 2009 varð afkoma Orkubús Vestfjarða mun betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Rekstraráætlun ársins gerði ráð fyrir rekstrarhagnaði að upphæð 66,3 milljónir kr. en samkvæmt rekstrarreikningi varð hagnaður af venjubundnum rekstri fyrir skatta, sem nam um 247,5 milljónir kr., en þegar tekið er tillit til breytinga á tekjuskattsprósentu og bókfærðs tekjuskatts 2009 er hagnaður ársins um 234,4 milljónir kr..Afskriftir námu alls 210,5 milljónum kr.. Eignir Orkubús Vestfjarða ohf. í árslok 2009 voru alls 5,3 milljarðar kr. og heildarskuldir alls 656 milljónir kr. Eigið fé nam því alls 4.7 milljörðum kr. sem er um 87,7 % af heildarfjármagni. Eignir Orkubús Vestfjarða ohf. hafa ekki verið endurmetnar.Á árinu 2009 var 350,5 milljónum kr. varið til fjárfestinga. Orkubú Vestfjarða hefur um langt skeið fjármagnað allar framkvæmdir sínar með fé frá rekstri og er fyrirtækið því skuldlaust ef frá eru taldar eldri lífeyrisskuldbindingar. Þessi stefna hefur leitt til þess að fjármagnskostnaður, sem nú er að sliga flest orkufyrirtæki landsins, er lítill sem enginn og unnt hefur verið að reka fyrirtækið með hagnaði á undanförnum árum.Á árinu 2009 voru teknar ákvarðanir um virkjunarframkvæmdir og endurnýjun í Mjólkárvirkjun á árunum 2010 og 2011. Gert er ráð fyrir að kostnaður verði um einn milljarður kr. og stefnir Orkubúið að því að fjármagna þær með fé frá rekstri, á næstu þremur árum, þannig að ekki þurfi að taka langtímalán þeirra vegna.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira