Vestia og Atorka Group setja Parlogis í sölu 10. maí 2010 09:34 Söluferlið hefst 10. maí 2010 og er opið öllum áhugasömum fjárfestum, sem teljast fagfjárfestar samkvæmt lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti og sýnt geta fram á fjárfestingargetu umfram 300 milljónir króna.
Vestia ehf., dótturfélag Landsbankans (NBI hf.) og Atorka Group hf. hafa falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í dreifingarfyrirtækinu Parlogis ehf.Í tilkynningu segir að Parlogis á sér langa sögu sem eitt helsta dreifingarfyrirtæki á vörum til íslensks heilbrigðiskerfis. Markaðshlutdeild í dreifingu lyfja er yfir 30%. Fyrirtækið býr yfir 4.000 fermetra sérhæfðu lagerhúsnæði, nútíma upplýsingakerfum, þróuðum vinnuferlum og hæfu starfsfólki.Þó rekstur Parlogis sé og hafi verið góður, fór félagið ekki varhluta af gengisfalli krónunnar og bankahruninu. Í kjölfarið leysti Landsbankinn hlut fyrri eiganda til sín. Í dag er Parlogis í eigu Vestia (80%) og Atorku Group (20%) eftir fjárhagslega endurskipulagningu þar sem hluta skulda var breytt í hlutafé.Söluferlið hefst 10. maí 2010 og er opið öllum áhugasömum fjárfestum, sem teljast fagfjárfestar samkvæmt lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti og sýnt geta fram á fjárfestingargetu umfram 300 milljónir króna. Þeim fjárfestum sem óska eftir að taka þátt í söluferlinu ber að fylla út trúnaðaryfirlýsingu, veita upplýsingar vegna hæfismats og leggja fram fullnægjandi staðfestingu á áðurnefndri fjárfestingargetu. Unnt er að nálgast kynningarblað, trúnaðaryfirlýsingu og eyðublað vegna hæfismats á heimasíðu Landsbankans, landsbankinn.is.Þeir fjárfestar sem uppfylla skilyrði fyrir þátttöku á fyrra stigi söluferlisins fá afhent ítarleg kynningargögn um Parlogis. Á grundvelli þeirra gagna skulu bjóðendur gera óskuldbindandi tilboð á þar til gerðu tilboðseyðublaði. Frestur til að skila óskuldbindandi tilboði rennur út kl. 16:00, fimmtudaginn 27. maí 2010. Tilboð verða opnuð í viðurvist óháðs aðila.Þeim sem leggja fram hagstæðustu tilboðin að mati seljenda verður boðið að taka þátt á síðara stigi söluferlisins. Þeir fá þá aðgang að viðbótar gögnum um Parlogis í gagnaherbergi til að framkvæma áreiðanleikakönnun, auk þess sem þeim verður boðið til kynningar með stjórnendum fyrirtækisins. Frestur til að skila bindandi tilboði rennur út kl. 16:00 mánudaginn 21. júní 2010. Stefnt er að því að ljúka söluferlinu fyrir lok júní 2010.Rétt er að árétta að seljendur, Vestia og Atorka Group, áskilja sér rétt til að hafna öllum tilboðum, breyta söluferlinu og/eða stöðva það eftir atvikum. Öllum þátttakendum verður tilkynnt um slíka ákvörðun og rökstuðning fyrir henni.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Súperdósin snýr aftur Neytendur Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira