Sigurður setur skilyrði fyrir heimkomu 10. maí 2010 18:57
Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, hefur ekki orðið við beiðni sérstaks saksóknara um að koma fyrr til yfirheyslu vegna rannsóknar á málefnum Kaupþings. Sigurður hefur verið boðaður til yfirheyrslu næstkomandi föstudag og setur skilyrði fyrir að flýta för sinni að hann verði ekki handtekinn við komuna til landsins. Hann hefur einnig boðið sérstökum saksóknara að yfirheyra sig í Bretlandi. Fréttastofa greindi frá því fyrir helgi að Sigurður Einarsson fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings hefði verið boðaður í skýrslutöku hjá sérstökum saksóknara í lok þessarar viku. Eftir handtöku Hreiðars Más Sigurðssonar og Magnúsar Guðmundssonar fór sérstakur saksóknari þess á leit við Sigurð að hann flýtti komu sinni til landsins því mikilvægt þótti að hraða rannsókn málsins í ljósi gæsluvarðhaldsúrskurða. Sigurður hefur réttarstöðu grunaðs í hluta rannsóknarinnar. Hann hefur hins vegar ekki sinnt kalli embættisins um að koma fyrr til landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Sigurður boðið starfsmönnum sérstaks saksóknara að yfirheyra sig í Bretlandi. Þá á hann einnig að hafa boðist til að koma til landsins í skýrslutöku gegn því skilyrði að hann yrði ekki handtekinn. Gestur Jónsson verjandi Sigurðar vildi ekki tjá sig um málið þegar leitað var eftir því í dag. Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari varðist allra frétta en samkvæmt upplýsingum frá embættinu er reynt eftir fremsta megni að fá Sigurð í yfirheyrslur.
Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Sjá meira