Næsta skref er aflétting á útstreymi gjaldeyris 31. október 2009 11:52 Már Guðmundsson seðlabankastjóri á fundinum í morgun. Mynd/Sigurjón
Seðlabankinn hefur stigið fyrsta skref í afnámi gjaldeyrishafta, en innstreymi erlends gjaldeyris til nýfjárfestinga er nú heimilað. Þetta var tilkynnt á fréttamannafundi í Seðlabankanum í morgun. Seðlabankastjóri sagði á fundinum að gjaldeyrishöftin sem sett voru í nóvember 2008 hafi verið talin nauðsynleg til að koma á stöðugleika í þjóðarbúskapnum í kjölfar bankahrunsins. Aðstæður hafi nú skapast til að stíga fyrsta skrefið í afnámi haftanna. Meðal annars liggi fyrir langtímaáætlun í ríkisfjármálum sem felur í sér mikið aðhald. Þá sé fyrstu endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins lokið, en hún tryggir Seðlabankanum aðgang að auknum gjaldeyrisforða. Innstreymi erlends gjaldeyris sem er tilkomið vegna nýfjárfestinga er nú heimilað og framtíðar útstreymi gjaldeyris sem leiðir af þeim fjárfestingum. Þetta þýðir að fjárfestar fá heimild án takmarkana til að skipta söluandvirði eigna sem þeir fjárfesta í frá og með deginum á morgun aftur í erlendan gjaldeyri. Erlendir aðilar hafa ennþá, líkt og áður, fulla heimild til að skipta vaxtatekjum og arði af fjárfestingum hér á landi í erlendan gjaldeyri. Seðlabankastjóri segir að ef innstreymið verður verulegt gæti það auðveldað bankanum að kaupa gjaldeyri á næstunni og búa þannig í haginn fyrir næsta skref sem verður aflétting á útstreymi erlends gjaldeyris.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Sjá meira