Ákvörðun tekin um eignarhald Arion fyrir lok mánaðarins 22. nóvember 2009 12:21 Arion banki. Mynd/ Pjetur.
Erlendir kröfuhafar Kaupþings þurfa að taka ákvörðun um hvort þeir vilji gerast hluthafar í Arion banka fyrir hinn 30. nóvember næstkomandi. Bankastjóri bankans segir að erlent eignarhald yrði bankanum til góðs og vonast eftir því að það verði raunin. Óvissa er um hverjir verða stærstu hluthafar Arion banka ef erlent eignarhald verður að veruleika. Helstu lánveitendur Kaupþings voru evrópskir bankar og þar er Deutsche bank óumdeilanlega stærstur, en þýskir bankamenn tóku vel í beiðnir íslenskra bankamanna um lánafyrirgreiðslur á meðan góðærið stóð sem hæst. Stærstur hluti krafna í þrotabú Kaupþings er hins vegar í formi skuldabréfa, en skuldabréfin hafa gengið kaupum og sölum með afföllum frá bankahruninu á síðasta ári og því er ljóst að kröfuhafahópur bankans breytist dag frá degi. Frestur til að lýsa kröfum í þrotabú Kaupþings rennur út 30. desember næstkomandi og þá fyrst mun liggja fyrir hverjir eignast Arion banka, ef af erlendu eignarhaldi verður. Erlendir kröfuhafar Kaupþings liggja nú yfir gögnum um Arion banka, en þeir þurfa að taka ákvörðun um aðkomu sína að bankanum fyrir hinn 30. nóvember næstkomandi. Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka, segir að erlent eignarhald yrði bankanum til góðs.
Mest lesið Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Segir Seðlabankann vera að falla í sömu gryfju og fyrir hrun Viðskipti innlent Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Stefán Atli gengur til liðs við Öryggismiðstöðina Viðskipti innlent Rannsókn: Vinnustaðapartí algengur vettvangur kynferðislegrar áreitni Atvinnulíf Allir sýknaðir í Aurum-málinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Sjá meira