AGS: Tiltekur 19 milljarða lán frá ESB til Íslands 4. nóvember 2009 12:28
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) tiltekur í vinnuskýrslu sinn um Ísland sem birt var í gærdag að í stað 500 milljón dollara láns frá Rússum megi eiga von á 150 milljóna dollara, eða tæpa 19 milljarða kr., láni frá Evrópusambandinu auk þess sem verulegur hluti veðlánalínu við BIS (Seðlabanki seðlabanka í Basel) sé enn ónýttur og síðast en ekki síst hafi áætlunin upphaflega gert ráð fyrir 250 milljón dollara meiri fjármögnun en þörf var á. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þrátt fyrir að Rússar hafi gengið úr skaftinu sem lánveitendur innan vébanda áætlunar AGS og stjórnvalda telur sjóðurinn að fjármögnun áætlunarinnar sé tryggð. „Lán ESB er áhugavert í þessu samhengi, en fyrst var imprað á því á haustdögum án þess að tilgreint væri nákvæmlega um hvað væri að ræða," segir í Morgunkorninu. Í skýrslu sinni tekur AGS fram að erlendar skuldir þjóðarbúsins hafi reynst meiri en vænst var fyrir ári síðan. Hins vegar bendir sjóðurinn á að verulegur hluti þeirrar aukningar skrifist á lánveitingar milli móður- og dótturfélags einnar tiltekinnar fyrirtækjasamstæðu. Í fjölmiðlum hefur reyndar komið fram að hér er um Actavis að ræða. Telur sjóðurinn því eftir sem áður að ef farið verður eftir aðgerðaáætluninni muni erlendar skuldir verða viðráðanlegar næstu árin og hjaðna jafnt og þétt þegar frá líður, jafnvel þótt frekari áföll ríði yfir þjóðarbúið á tímabilinu. Athygli vekur hins vegar að sjóðurinn tiltekur að fullur og staðfastur pólitískur stuðningur við áætlunina sé nauðsynlegur fyrir framgang áætlunarinnar. „Má velta því fyrir sér hvort þarna sé verið að brýna stjórnarflokkana til samstöðu um áætlunina, en eins og kunnugt er hafa óánægjuraddir um hana verið býsna háar meðal annars stjórnarflokksins," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira