Viðskipti innlent

Gengi Bakkavarar aldrei lægra í lok dags

Ágúst og Lýður Guðmundssynir, stofnendur og stærstu hluthafar Bakkavarar.
Ágúst og Lýður Guðmundssynir, stofnendur og stærstu hluthafar Bakkavarar. Mynd/GVA

Gengi hlutabréfa í Bakkavör Group féll um 4,76 prósent í Kauphöllinni í dag. Það endaði í einni krónu á hlut en fór tímabundið í 99 aura og hefur aldrei verið lægra. Þetta jafngildir því að markaðsverðmæti félagsins nemi rúmum 2,1 milljarði króna.

Þá lækkaði gengi bréfa í Marel Food Systems um 0,97 prósent og Össurar um 0,48 prósent.

Gengi bréfa í Century Aluminum hækkaði um 5,26 prósent á sama tíma.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 0,88 prósent og endaði í 261 stigi.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×