Opinberum starfsmönnum hefur fjölgað um 27% frá árinu 2000 20. nóvember 2009 13:25
Opinberum starfsmönnum hefur fjölgað um 27% frá árinu 2000. Samtals voru stöðugildin 28.700 árið 2000 en voru orðin 37.400 talsins í apríl s.l. Hlutfallsleg aukning á tímabilinu er því 27%, 29% hjá ríkinu og 32% hjá sveitarfélögum.Þetta kemur fram í svari Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra við fyrirspurn Þorgerðar K. Gunnarsdóttur um fjölda starfsmanna hjá ríki og sveitarfélögum á AlþingiÍ svarinu segir að tölum um fjölda starfsmanna ríkis og sveitarfélaga er ekki safnað saman á samræmdan hátt. Þannig eru ekki tiltækar upplýsingar um fjölda starfsmanna (einstaklinga) hjá báðum aðilum sem ná yfir allt tímabilið, en aftur á móti eru til upplýsingar um fjölda starfa (stöðugilda í dagvinnu).Upplýsingar um fjölda stöðugilda hjá sveitarfélögum, sem voru fengnar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, ná aftur til ársins 2000, að undanskildum árunum 2001 og 2003. Upplýsingar um fjölda stöðugilda hjá ríkinu eru fengnar úr launavinnslukerfi ríkisins. Miðað er við fjöldatölur 1. apríl ár hvert.Varðandi fjöldatölur ríkisstarfsmanna verður að gæta þess að á tímabilinu 1999-2006 hafa verkefni verið færð á milli ríkis og sveitarfélaga, ríkisstofnanir verið færðar á milli ráðuneyta, á milli A- og B-hluta og verið gerðar að hlutafélögum, auk þess sem tilfærslur hafa orðið milli launavinnslukerfa hjá ríkinu. Árið 2001 fluttust um 1.300 stöðugildi frá Reykjavíkurborg til ríkisins við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur (Borgarspítala) og Landspítala.Á árinu 2006 færði stærstur hluti heilbrigðisstofnana launaafgreiðslu sína yfir til ríkisins og fjölgaði þá stöðugildum í launavinnslukerfinu um 1.500. Heilbrigðisstofnanirnar voru í sérstöku launavinnslukerfi og því er ekki um fjölgun stöðugilda að ræða heldur færslu á milli kerfa.Í apríl 2009 voru 18.000 stöðugildi í dagvinnu hjá ríkinu samkvæmt launavinnslukerfi ríkisins. Samkvæmt upplýsingum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga var fjöldi stöðugilda hjá sveitarfélögum rúmlega 19.400 á sama tíma. Samtals voru stöðugildin 37.400.Í sama mánuði árið 2000 voru stöðugildi í launavinnslukerfi ríkisins 14.000 og eru þá ótalin tæplega 2.800 stöðugildi sem færðust síðar í launavinnslukerfið, sbr. fyrrgreint. Í apríl 2000 var fjöldi stöðugilda rúmlega 14.700 hjá sveitarfélögum, samkvæmt sömu heimildum og að framan greinir. Samtals voru stöðugildin þá 28.700.Hlutfallsleg aukning á tímabilinu er því 27%, 29% hjá ríkinu og 32% hjá sveitarfélögum. Að teknu tilliti til tilfærslna milli kerfa hjá ríkinu á tímabilinu er samtals aukning um 19%.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira