Launavísitalan hækkaði um 1,5% milli mánaða 21. desember 2009 09:15
Launavísitala í nóvember 2009 er 365,4 stig og hækkaði um 1,5% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 4,0%. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að vísitala kaupmáttar launa í nóvember 2009 er 105,2 stig og hækkaði um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 4,3%. Samkvæmt samkomulagi um breytingar á kjarasamningum milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins, sem undirritað var þann 25. júní sl. hækkuðu lágmarkskauptaxtar verkafólks og afgreiðslufólks um kr. 6.750 þann 1. nóvember 2009. Lágmarkskauptaxtar iðnaðarmanna og skrifstofufólks hækkuðu um kr. 8.750 frá sama tíma. Í samkomulaginu var einnig kveðið á um að almenn 3,5% launaþróunartrygging kæmi til framkvæmda 1. nóvember 2009. Frá þeirri hækkun dragast hækkanir á launum starfsmanns frá og með 1. janúar 2009 til og með 1. nóvember 2009, þ.m.t. vegna hækkunar lágmarkskauptaxta kjarasamninga. Samkvæmt samkomulagi sem Launanefnd sveitarfélaganna gerði við 33 stéttarfélög innan Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og Alþýðusambands Íslands þann 8. júlí 2009 um framlengingu og breytingar á kjarasamningum, hækkuðu lægstu virku launaflokkar um kr. 6.750 þann 1. nóvember 2009. Sambærilegt samkomulag var gert á milli Fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs annars vegar og hluta af aðildarfélögum BSRB og við aðildarfélög ASÍ.
Mest lesið Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Sjá meira