Hlutafé Nova aukið um þrjá milljarða 11. nóvember 2009 03:15 Liv bergþórsdóttir segir stefna í að viðskiptavinir Nova verði sextíu þúsund í lok ársins.
Novator, félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, helsta eiganda fjarskiptafyrirtækisins Nova, lagði Nova til tæpa 2,9 milljarða króna í aukið hlutafé á síðasta ári. Í fyrirvara endurskoðenda við ársreikning Nova vegna afkomu síðasta árs segir að vegna óvissu í íslensku efnhahagslífi eftir hrunið í fyrra og þeirra breytinga sem hafi orðið á íslensku viðskiptalífi í kjölfarið hafi óvissa um framtíðarvöxt Nova aukist. Því hafi hlutafé fyrirtækisins verið bætt verulega. Þá segir að stjórnendur félagsins hafi nægt fjármagn til að fjármagna áætlaðan taprekstur fram á fjórða ársfjórðung á þessu ári, gangi áætlanir eftir. Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova, segir efnahagshrunið ekki hafa sett það skarð í reksturinn líkt og óttast hafi verið. Þvert á móti stefni í að viðskiptavinir verði sextíu þúsund í lok þessa árs en það er tvöföldun á milli ára. Þá er gert ráð fyrir að tekjur nemi 2,5 milljörðum króna fyrir árið, samanborið við 1,3 milljarða í fyrra. Nova tapaði 1,3 milljörðum í fyrra, á fyrsta rekstrarárinu. „Við gerðum ráð fyrir því að síðasta ár yrði á þessum nótum. Rekstraráætlanir ársins hafa gengið eftir þrátt fyrir hrunið," segir Liv og þakkar það meðal annars aukinni verðvitund neytenda að viðskiptavinum hafi fjölgað þetta mikið á árinu.- jab
Mest lesið Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Sjá meira