Landsbankinn tapaði 19 milljörðum frá þjóðnýtingu til áramóta Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 11. nóvember 2009 18:30
Nýi Landsbankinn tapaði nítján milljörðum króna frá því bankinn var tekinn yfir af ríkinu eftir hrun á síðasta ári til áramóta. Á þessum rúmu tveimur mánuðum hagnaðist Nýja Kaupþing hins vegar um fimm milljarða. Þetta kemur fram í nýrri vinnuskýrslu starfshóps Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um stöðu efnahagsmála á Íslandi sem birt var í síðustu viku. Í skýrslunni má sjá tölur úr bókhaldi nýju bankanna þriggja, Landsbankans, Kaupþings og Íslandsbanka. Tölurnar eru frá því eftir hrun bankanna í október og fram að áramótunum þar á eftir. Eða frá tveggja til þriggja mánaða tímabili. Þar sést að Nýi Landsbankinn tapaði nítján milljörðum króna á þessu tímabili. Nýja Kaupþing skilaði hins vegar fimm milljarða króna hagnaði en Íslandsbanki tapaði tveimur milljörðum króna. Ríkið lagði hundrað og fjörtíu milljarða inn í Nýja Landsbankann. Nítján milljarðar fóru í að dekka tap bankans en það sem eftir stendur, hundrað og tuttugu og einn milljarður, í nýtt eigið fé bankans. Benda má á að tölur Landsbankans eru ekki endanlegar þar sem ekki er búið að ljúka endurfjármögnun bankans. Peningamarkaðssjóðir Landsbankans rýrnuðu mest allra peningamarkaðssjóða við bankahrunið. Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans, sagði í samtali við fréttastofu að kaup bankans á bréfum úr peningamarkaðssjóðum skýrðu tapið. Ef ekki hefði komið til þeirra hefði bankinn væntanlega verið rekinn með hagnaði.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira