Stefna Glitnissjóðum vegna Sjóðs 9 Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. nóvember 2009 17:13
Hópur hlutdeildarskírteinishafa í peningamarkaðssjóðnum Sjóður 9 sem starfræktur var á vegum Glitnis hyggst stefna sjóðnum. „Útgreiðsluhlutfallið úr Sjóði 9 var 85,12% miðað við síðasta skráða gengi sjóðsins þann 6. október í fyrra," segir Einar Hugi Bjarnason, lögmaður hjá Ergó lögmönnum, sem undirbýr málsóknina. Einar Hugi segir að krafist verði viðurkenningar á skaðabótaskyldu Íslandssjóða hf., sem áður hétu Glitnissjóðir hf., vegna mismunarins og þess tjóns sem sjóðsfélagar urðu fyrir. „Þessu til viðbótar er það staðreynd að Glitnir keypti í lok september, með stuðningi þáverandi ríkisstjórnar, skuldabréf Stoða hf. eða FL Group út úr sjóðnum fyrir tæpa 12 milljarða króna. Sama dag var framkvæmd varúðarniðurfærsla í sjóðnum upp á tæp 7% sem þýðir að raunverulegt tap sjóðsfélaga var rúmlega 20% eða fimmtungur," segir Einar Hugi. Aðspurður um hvort slíkt mál geti unnist segist Einar Hugi engu vilja spá um niðurstöðuna fyrirfram „En það segir sig sjálft að menn væru ekki að fara af stað með málið nema að hafa trú á því að eiga möguleika á að ná fram hagstæðri niðurstöðu. Málsóknin er í grófum dráttum reist á því að fjárfestingar og eignasafn sjóðanna hafi ekki verið í samræmi við meðal annars þær reglur sem bankinn sjálfur hafði sett sér, þar sem til dæmis 20% af heildareignum sjóðsins átti að vera í formi ríkisskuldabréfa," segir Einar Hugi. Staðreyndin sé hins vegar sú að engin ríkisskuldabréf hafi verið að finna í eignasafninu. Þá hafi markaðssetning sjóðanna einnig verið verulega ámælisverð. Kröfulýsingafrestur í þrotabú Glitnis rennur út þann 26. nóvember næstkomandi. „Það er mjög mikilvægt fyrir sjóðsfélaga í Sjóði 9, sem og í öðrum sjóðum sem starfræktir voru á vegum bankans, að lýsa kröfum sínum til slitastjórnar Glitnis innan kröfulýsingfrestsins. Að öðrum kosti er hætta á réttarspjöllum verði niðurstaða dómstóla á þá leið að skaðabótaskylda gagnvart sjóðsfélögum verði viðurkennd," segir Einar Hugi Bjarnason.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Sjá meira