Vaxtatekjur einstaklinga 2007 hækkuðu um 19 milljarða 3. nóvember 2009 09:15
Vaxtatekjur einstaklinga af bankainnistæðum árið 2007 hækkuðu um 19 milljarða kr. við endurmat Hagstofunnar á þessum tekjum. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Hagstofan hefur nú endurskoðað mat á ráðstöfunartekjum heimila 2000-2007 sem birt var 7. september síðastliðinn. Þessi endurskoðun byggir á nýjum gögnum um vaxtatekjur af bankainnistæðum einstaklinga á þessu tímabili. Fyrir tekjuárið 2008 var fjármálastofnunum gert skylt í fyrsta sinn að veita skattyfirvöldum upplýsingar um innistæður og vaxtatekjur. Þetta olli því að niðurstöður fyrri ára var ekki unnt að bera saman við niðurstöðuna tekjuárið 2008. Nú hefur verið bætt úr þessu með því að afla sambærilegra gagna fyrir árin 2000-2007. Tölur ársins 2008 breytast ekki en hlutfallstölur yfir þróun ráðstöfunartekna breytast hins vegar eðli málsins samkvæmt. Vaxtatekjur af bankainnistæðum einstaklinga eru samkvæmt endurmatinu taldar hafa numið rúmum 45 milljörðum króna árið 2007. Í áður birtum tölum var gert ráð fyrir 26 milljarða króna tekjum. Nýtt mat á vaxtatekjum af bankainnistæðum er unnið út frá upplýsingum um innheimtan fjármagnstekjuskatt af vaxtatekjum yfir umrætt tímabil. Ráðstöfunartekjur heimilageirans eru taldar, samkvæmt endurskoðuðu mati vaxtatekna, hafa aukist um 14,9% á árinu 2008 frá fyrra ári í krónum talið. Ráðstöfunartekjur á mann jukust um 12,1% milli ára og kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann dróst saman um 0,3%. Heildartekjur heimilageirans eru taldar hafa aukist um 12,6% á verðlagi hvors árs og heildareigna- og tilfærsluútgjöld um 9,0%.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Sjá meira