Viðskipti innlent

Byggingarkostnaður jókst um 0,7% milli mánaða

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan nóvember 2009 er 500,7 stig sem er hækkun um 0,7% frá fyrri mánuði. Vísitalan gildir í desember 2009.

Í frétt um málið á vefsíðu Hagstofunnar segir að vinnuliðir hækkuðu um 2,9% (áhrif á vísitölu 0,9%) vegna samkomulags Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands frá 25. júní. Efnisliðir lækkuðu um 0.4% (-0,2%).

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 4,6%.

Í janúar 2010 verður vísitala byggingarkostnaðar birt á nýjum grunni (janúar 2010 = 100). Gerð verður nánari grein fyrir grunnskiptunum og breytingum sem þeim fylgja við birtingu vísitölunnar í desember 2009.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×