Sex milljarða króna lántaka Reykjavíkurborgar frestast um sinn Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. desember 2009 21:42 Ráðhús Reykjavíkur. Mynd/ GVA.
Reykjavíkurborg hafnaði öllum tilboðum sem bárust í skuldabréfaútboði sem borgarráð samþykkti að fara í þann 1. desember síðastliðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni sem birtist á vef Kauphallarinnar. Ástæðan er sú að Reykjavíkurborg telur að ávöxtunarkrafan sé of há. Borgarráð hafði samþykkt lántöku vegna framkvæmda á næsta ári að fjárhæð allt að 5.8 miljarðar króna til 45 ára með stækkun á skuldabréfaflokki Reykjavíkurborgar. Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar, segir að í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar liggi fyrir ákvörðun um að taka skuldabréfalán vegna framkvæmda á næsta ári. Þetta sé í samræmi við framkvæmdaáætlun sem fylgi fjárhagsáætluninni. „Samþykkt þessarar fjárfestingaráætlunar byggir á því að fjármögnun takist með ásættanlegum hætti og ég tel nú bara að þessi tilraun sé komin á enda. Svo veltum við því bara fyrir okkur hvaða möguleika við höfum, en þetta getur allt tekið sinn tíma," segir Birgir Björn Sigurjónsson. Aðspurður um það hve há ávöxtunarkrafan í tilboðunum sem bárust hafi verið vísar Birgir á Innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar til svara.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira