Athugasemdir gerðar við lánveitingu TM til Samherja 16. nóvember 2009 18:54
Gögn sem send voru Fjármálaeftirlitinu sýna að athugasemdir voru gerðar við lánveitingu Tryggingarmiðstöðvarinnar til Samherja vegna kaupa á eigin hlutum félagsins. Fjármálaeftirlitið kannast samt sem áður ekki við að hafa fengið erindi vegna þess. Fréttastofa sagði frá því í síðustu viku að Tryggingarmiðstöðin hefði lánað Samherja einn milljarð króna til að kaupa eigin bréf félagsins árið 2006. Lánveitingin var aldrei borin undir stjórn félagsins en stjórnarmenn sendu kvörtun til Fjármálaeftirlitsins. Liður í þeirri kvörtun var umrætt lán til Samherja. Þeir lögfræðingar sem fréttastofa hefur rætt við telja að lánið hafa verið ólöglegt. Í kjölfar fréttarinnar sendi Fjármálaeftirlitið frá sér yfirlýsingu þar sem fram kom að eftir að hafa farið vandlega yfir gögn frá þessum tíma hafi komið í ljós að ekki hafi borist kvörtun um lánveitinguna frá stjórnarmönnum TM. Óskar Magnússon, sem var forstjóri TM á þessum tíma, sendi einnig frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagði að ljósi yfirlýsingar Fjármálaeftirlitsins hefði fréttastofa ranglega haldið því fram að um ólöglega lánveitingu hafi verið að ræða. Fréttastofa hefur undir höndum bréfaskriftir fyrrverandi stjórnarmanns TM til Hlyns Jónssonar, sem var yfirmaður hjá Fjármálaeftirlitinu, vegna málsins. Í bréfi sem sent er eftirlitinu 31. janúar 2007 er gerð athugasemd við lánveitinguna. Þar segir að þeir sem stóðu að sölunni hafi látið duga að skuldfæra viðskiptareikning Samherja hjá TM fyrir kaupverðinu. Stjórnarmanninum sé ekki kunnugt um að stjórn félagsins hafi nokkru sinni veitt heimild sína fyrir þessum viðskiptaháttum, sem seint verða taldir eðlilegir. Skuldinni á viðskiptareikningnum hafi svo verið breytt í skuldabréf með einum gjalddaga. Hjá Fjármálaeftirlitinu fengust þau svör að rétt sé að eftirlitinu hafi borist fyrirspurnir er vörðuðu yfirtökuskyldu en kannast hins vegar ekki við að borist hafi sérstakt erindi varðandi sjálfar lánveitingarnar. Af gögnunum má þó sjá að athugasemdir voru gerðar við lánveitinguna þó að þær hafi ekki verið sendar sem sérstakt erindi.
Tengdar fréttir TM lánaði Samherja milljarð til að kaupa hlut í TM Tryggingarmiðstöðin, undir forystu Óskars Magnússonar, braut lög þegar félagið lánaði Samherja einn milljarð króna til að kaupa hlut í sjálfu sér árið 2006. Óskar segir að endurskoðandi hafi gert athugasemdir við lánið. Fjármálaeftirlitið hunsaði kvörtun stjórnarmanna TM vegna málsins. 9. nóvember 2009 18:29 Efnahagsbrotadeildin rannsakar mögulega lán TM til Samherja Saksóknari efnahagsbrotadeildar íhugar að rannsaka lánveitingu Tryggingarmiðstöðvarinnar til Samherja til að kaupa bréf í félaginu. Lánveitingin var brot á hlutafélagalögum. 10. nóvember 2009 18:30 Mest lesið Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira
TM lánaði Samherja milljarð til að kaupa hlut í TM Tryggingarmiðstöðin, undir forystu Óskars Magnússonar, braut lög þegar félagið lánaði Samherja einn milljarð króna til að kaupa hlut í sjálfu sér árið 2006. Óskar segir að endurskoðandi hafi gert athugasemdir við lánið. Fjármálaeftirlitið hunsaði kvörtun stjórnarmanna TM vegna málsins. 9. nóvember 2009 18:29
Efnahagsbrotadeildin rannsakar mögulega lán TM til Samherja Saksóknari efnahagsbrotadeildar íhugar að rannsaka lánveitingu Tryggingarmiðstöðvarinnar til Samherja til að kaupa bréf í félaginu. Lánveitingin var brot á hlutafélagalögum. 10. nóvember 2009 18:30