Kaupþing mun ræða við Guðmund Franklín um Haga 16. nóvember 2009 18:41
Bankastjóri Nýja Kaupþings segir að bankinn muni ræða við Guðmund Franklín Jónsson vegna sölu Haga ef eftir því verður óskað þótt fyrsti kostur sé að núverandi eigendur komi inn með nýtt fé. Guðmundur á sjálfur litríkan feril að baki í viðskiptalífinu. Rúmlega 3300 manns hafa lýst yfir áhuga á því að fjárfesta í Högum, samkvæmt vefsíðunni thjodarhagur.is, eða um eitt prósent þjóðarinnar. Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings, sagði í samtali við fréttastofu í dag að bankinn myndi ræða um Haga við Guðmund Franklín Jónsson og aðra áhugasama fjárfesta, ef óskað yrði eftir því. Það væri hins vegar í samræmi við verklagsreglur bankans að gefa núverandi eigendum Haga kost á því á að leggja fram nýtt fé. Guðmundur Franklín sagði í samtali við fréttastofu ekkert væri hæft í þeim sögusögnum að framsóknarmennirnir Finnur Ingólfsson og Þórólfur Gíslason stæðu að baki hópnum. Hann neitaði því jafnframt að Sigurður Gísli Pálmason og Jón Pálmason hefðu lagt hópnum til fjármagn, en þeir eru synir Pálma Jónssonar, stofnanda Hagkaupa. Guðmundur Franklín, sem er 46 ára og viðskiptafræðingur að mennt, starfaði í 13 ár sem verðbréfamiðlari á Wall Street. Guðmundur var lengi eini íslenski verðbréfamiðlarinn utan Íslands og var duglegur að finna fjárfestingarverkefni fyrir íslensku lífeyrissjóðina. Guðmundur var stjórnarformaður Burnham International, en það varð gjaldþrota árið 2002 og skildi eftir sig sviðna jörð. Kröfur í þrotabúið námu á fjórða hundrað milljónir króna. Meða þeirra sem áttu háar kröfur í búið voru íslenskir lífeyrissjóðir. Í tengslum við gjaldþrotið var m.a krafist kyrrsetningar á húseign Guðmundar vegna ógreiddra skuldabréfa að fjárhæð 80 milljóna króna. Guðmundur hefur síðustu sjö ár rekið Bellagio hótelið í Prag í Tékklandi, og hefur sagt fjárhagsstöðu sína ágæta í viðtölum. Þess má geta að Guðmundur er meðal umsækjenda um stöðu forstjóra Bankasýslu ríkisins, en umsóknarfrestur rann út hinn 2. nóvember síðastliðinn.
Mest lesið Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira