HS Orka hagnast um 2,2 milljarða fyrstu 9 mánuði ársins 16. nóvember 2009 15:33
Hagnaður HS Orku á fyrstu níu mánuðum ársins var rúmlega 2,2 milljarðar kr. Eiginfjárhlutfall er komið í 23,0% en var 16,3% í upphafi ársins.Til samanburðar var tap að fjárhæð tæplega 11,7 milljarðar kr. allt árið 2008. Þegar tekið er tillit til tekna og gjalda sem færð eru á eigið fé er heildarhagnaður tímabilsins 2,6 milljarðar kr. samanborið við tap að fjárhæð 4.744 millj. kr. á árinu 2008.Samkvæmt yfirliti um heildarafkomu námu rekstrartekjur HS Orku hf. á tímabilinu tæplega 4,4 milljarðar kr., en voru rúmir 5,4 millj. kr. á allt árið áður. Vænt hækkun rekstrartekna allt árið 2009 nemur 7% frá árinu 2008. Hækkun tekna er að hluta til vegna þjónustutekna vegna veittrar þjónustu til HS Veitna hf., en félögin hafa gert þjónustusamning sín á milli þar að lútandi.Framleiðslukostnaður og kostnaðarverð sölu nam 3.024 milljónir kr., samanborið við 3.066 milljónir kr. allt árið áður. Hækkun framleiðslukostnaðar og kostnaðarverðs sölu stafar mest megnis vegna fyrstu hreinsunar borhola á Reykjanesi auk kostnaðar vegna veittrar þjónustu við HS Veitur hf.Hrein fjármagnsgjöld voru 615 milljónir kr. á tímabilinu samanborið við hrein fjármagnsgjöld að fjárhæð 15,5 milljarða kr. allt árið áður. Veiking íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum leiddi til 1.225 milljóna kr. gengistaps, en allt árið áður nam gengistap 10,4 milljörðum kr.Skuldir HS Orku hf. nema tæplega 28,8 milljörðum kr. samkvæmt efnahagsreikningi, þar af eru skammtímaskuldir tæplega 5,6 milljarðar kr. Skuldir hafa lækkað um 1.770 milljónir kr. frá áramótum. Af því nemur lækkun langtímaskulda 7 milljóna kr. Skammtímaskuldir lækka um 1.762 milljóna kr., sem skýrist að mestu leyti af greiðslu vaxtaberandi skammtímalána og greiðslu skammtímaskulda vegna framkvæmdakostnaðar.Félagið uppfyllir ekki fjárhagsskilyrði í lánasamningum um lágmarks eiginfjárhlutfall og rekstrarhlutföll. Félagið hefur nú náð samkomulagi við NIB (Norræna fjárfestingabankann) og CEB (Þróunarbanka Evrópu) og samkomulag við EIB (Fjárfestingarbanki Evrópu) er á lokastigi.Í samræmi við samkomulagið munu bankarnir afsala sér rétti til gjaldfellingar vegna brota á upphaflegum fjárhagsskilyrðum í ákveðin tíma og skipta þeim út fyrir ný fjárhagsskilyrði til skamms tíma. Lánasamningar með brotin fjárhagsskilyrði eru sett fram til samræmis við upphafleg samningsákvæði.Horfur um rekstur HS Orku hf. eru góðar að því gefnu að samningar við alla lánadrottna félagsins um ný fjárhagsskilyrði og fleira um núverandi lán fyrirtækisins. Umsvif fara vaxandi og áfram verður unnið að aukinni orkuvinnslu.
Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Sjá meira