Greining gagnrýnir hringlandahátt Seðlabankans 25. nóvember 2009 13:13 „
Væri ekki úr vegi að bankinn útskýrði betur slík frávik frá yfirlýstri stefnu sinni, þar sem slíkar fyrirvaralausar og óútskýrðar breytingar á framkvæmd peningastefnunnar eru ekki til þess fallnar að auka gagnsæi peningastefnunnar eða trúverðugleika bankans."Þetta segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem rætt er um útboð Seðlabankans á innistæðubréfum í dag en athygli vekur að í tilkynningu um útboðið var tekið fram að aðeins yrðu 10 milljarðar kr. í boði.Greiningin bendir á að við síðustu vaxtaákvöðrun Seðlabankans var tilkynnt að hámarksupphæð í vikulegum útboðum innstæðubréfa yrði hækkuð úr 25 milljörðum kr. í 30 milljarða kr. og efri mörk vaxtabils voru á sama tíma hækkuð úr 10% í 10,25%. Átti þetta að vera til mótvægis við lækkun vaxta bankans og verða til þess að slökun á peningalegu aðhaldi sem í vaxtalækkuninni fólst yrði minni en ella.Umfjöllunin í heild hljóðar svo: „Upphæð samþykktra tilboða í útboði Seðlabankans á innstæðubréfum í dag var sú næstlægsta frá því farið var að gefa út innstæðubréf með núverandi sniði í septemberlok. Alls var tekið tilboðum fyrir tæplega 5,3 milljarða kr., en á móti eru bréf upp á 4,8 milljarða kr. á gjalddaga í dag. Heildarstabbi útistandandi innstæðubréfa hækkaði því lítillega og er nú 67,4 miljarðar kr. Meðalvextir í útboðinu voru 10,18% sem eru lítillega lægri vextir en í tveimur undanförnum útboðum.Athygli vekur að í tilkynningu um útboðið var tekið fram að aðeins yrðu 10 milljarðar kr. í boði. Við síðustu vaxtaákvörðun Seðlabankans var tilkynnt að hámarksupphæð í vikulegum útboðum innstæðubréfa yrði hækkuð úr 25 milljörðum kr. í 30 milljarða kr. og efri mörk vaxtabils voru á sama tíma hækkuð úr 10% í 10,25%. Átti þetta að vera til mótvægis við lækkun vaxta bankans og verða til þess að slökun á peningalegu aðhaldi sem í vaxtalækkuninni fólst yrði minni en ella.Tilkynning gærdagsins um 10 milljarða kr. hámark virðist við fyrstu sýn ganga þvert gegn þessari ætlan bankans, því takmarkað framboð er líklegt til að lækka niðurstöðuvexti í útboðunum og þar með draga heldur úr peningalegu aðhaldi. Sú varð að minnsta kosti raunin í dag þótt breytingin væri að sönnu lítil. Væri ekki úr vegi að bankinn útskýrði betur slík frávik frá yfirlýstri stefnu sinni, þar sem slíkar fyrirvaralausar og óútskýrðar breytingar á framkvæmd peningastefnunnar eru ekki til þess fallnar að auka gagnsæi peningastefnunnar eða trúverðugleika bankans."
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira