Vestmannaeyjar skila hagnaði á næsta ári 18. desember 2009 11:16
Í fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2010 er gert ráð fyrir að rekstur bæjarins, A og B hluti, skili hagnaði upp á 14 milljónir kr. Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti í gær fjárhagsáætlun fyrir árið 2010.Í tilkynningu segir að A-hlutibæjarsjóðs skili afgangi upp á rúmar 132 milljónir kr. Þó er gert ráð fyrir að útsvarstekjur verði tæplega 10% minni en rauntekjur útsvars vegna ársins 2009. Tekjuáætlun er því varfærin. Gert er ráð fyrir að heildarframlög frá Jöfnunarsjóði verði 2% lægri en þau voru árið 2009, en borið saman við heildarframlög Jöfnunarsjóðs árið 2008 er gert ráð fyrir tæplega 44% lækkun framlaga frá sjóðnum.Þegar að búið er að taka tillit til reksturs B-hluta stofnana er gert ráð fyrir að samanlagður afgangur verði upp á rúmar 14 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að heildar veltufé frá rekstri verði tæpar 441 milljón kr. hjá samstæðunni. Á árinu 2009 var greidd inn á höfuðstól lána rúmlega 740 milljónir kr., þetta hefur þau áhrif að næsta árs afborganir langtímalána lækka verulega.Í árslok 2009 eru langtímaskuldir við lánastofnanir um 720 milljónir en er gert ráð fyrir þær verði komnar niður í 686 milljónir í árslok 2010.Gert er ráð fyrir að ráðist verði í fjárfestingar á árinu 2010 hjá A-hluta fyrir 519 milljónir og að teknu tilliti B-hluta stofnana er gert ráð fyrir að heildarfjárfestingar á árinu 2010 verði 889 milljónir. Ekki er gert ráð fyrir að tekin verði ný langtímalán vegna þessara framkvæmda, heldur verða þær alfarið fjármagnaðar með veltufé frá rekstri og handbæru eigin fé sveitarfélagins. Gert er ráð fyrir að handbært fé í árslok, að afloknum framkvæmdum, verði rúmir 3,5 milljarðar kr.Fram kemur í tilkynningunni að skýringin á núverandi velgengni er tvíþætt. Annarsvegar hefur vel árað í sjávarútvegi eftir langt erfitt skeið vegna sterks gengis krónunnar. Hinsvegar er skýringin sú að á þenslutímanum hélt Vestmannaeyjabær að sér höndum í framkvæmdum og nýtti umhverfið á fjármagnsmarkaði til að hagræða í eiginarsafni sínu.Verðmætar eignir voru seldar og þeim snúið í peningalegar eignir. Lán voru greidd niður og áhersla lögð á niðurgreiðslu erlendra lána. Árið 2007 greiddi Vestmannaeyjabær niður seinustu erlendu lánin. Þá voru peningalegar eignir ávaxtaðar í öruggum en arðbærum sjóðum og inneignum. Það varð til þess að þrátt fyrir miklar fjármagnstekjur tapaði Vestmannaeyjabær ekki á bankahruninu.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira