Gjaldeyrissvik veikja gengi krónu verulega 9. desember 2009 05:00
Heildarfjárhæð viðskipta sem Seðlabankinn hefur til athugunar vegna brota á gjaldeyrisreglum er litlu lægri en verðmæti alls þorskútflutnings frá landinu fyrstu níu mánuði þessa árs. Heildarupphæð viðskipta sem Seðlabankinn hefur til athugunar vegna brota nemur rúmum 57,5 milljörðum króna. Meint brot voru framin á rúmlega tíu mánaða tímabili frá 28. nóvember 2008 til 1. október 2009. Að auki bíða um 100 mál skoðunar og munu fjárhæðir því hækka umtalsvert þegar fram líða stundir, að því er fram kemur í svari Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, við fyrirspurn Ásbjörns Óttarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem sagt var frá í Fréttablaðinu í gær. Til samanburðar má nefna að samkvæmt vef Hagstofu Íslands nam verðmæti á útfluttum þorski frá Íslandi á níu mánaða tímabilinu frá 1. janúar til 1. október á þessu ári 61,6 milljörðum króna. Fjárhæðir þeirra mála sem þegar eru til skoðunar vegna brota á gjaldeyrisreglum á tíu mánaða tímabili jafngilda því að verðmæti 93,3 prósentum af níu mánaða þorskútflutningi. Verðmæti allra útfluttra sjávarafurða nam 172,8 milljörðum króna fyrstu níu mánuði ársins en heildarútflutningur vöru og þjónustu var 555,4 milljarðar króna. Meint gjaldeyrissvik nema því 10,3 prósentum af heildarútflutningi vöru og þjónustu fyrstu níu mánuði ársins. Svo umfangsmikil brot á gjaldeyrisreglum veikja gengi krónunnar verulega, að sögn Þórólfs Matthíassonar, prófessors í hagfræði. Hann treystir sér ekki til að nefna hlutfallstölur í því sambandi. Þórólfur segir að líklega sé ávinningur þeirra sem stundað hafa svikin í hæsta lagi helmingur heildarfjárhæðarinnar „og sennilega þó töluvert undir því," segir hann.„Það er verið að selja í leiðinni vöru og þjónustu." Í svari efnahagsráðherra við fyrirspurninni segir að ekki sé hægt að veita upplýsingar um hvaða starfsemi þeir lögaðilar stunda sem grunaðir eru um brot á gjaldeyrisreglunum. 134 lögaðilar áttu hlut að viðskiptum með 91,93 prósent heildarfjárhæðarinnar en 110 einstaklingar hlut að viðskiptum með 8,07 prósent af heildarfjárhæðinni. - pg / sjá síðu 10
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira