Bæjarstjóradóttirin tók fúlgur fjár fyrir vinnu sína Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 22. maí 2009 18:31
Fyrirtæki dóttur bæjarstjórans í Kópavogi rukkaði allt að fjórfalt gangverð fyrir umbrot og hönnun á afmælisriti bæjarins fyrir fjórum árum, að mati auglýsingastofu í Reykjavík. Umfangsmikil viðskipti bæjarins við dóttur bæjarstjórans eru í hæsta máta óeðlileg segir fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi. Útgáfufélagið Frjáls miðlun er í eigu dóttur og tengdasonar Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra í Kópavogi og er það með aðsetur á heimili þeirra hjóna. Eins og fram hefur komið í fréttum hefur Frjáls miðlun fengið rúma fimmtíu og eina milljón króna á síðustu níu árum frá Kópavogsbæ fyrir meðal annars ljósmyndir, vinnu við gagnvirkt götukort, hönnun og gerð umverfisviðurkenninga, power point kynningar, hönnun á ársskýrslum og afmælisriti bæjarins - sem átti að koma út í tilefni af 50 ára afmæli Kópavogs árið 2005 en gerði það ekki. Hansína Ásta Björgvinsdóttir tók við bæjarstjórn Kópavogs eftir andlát Sigurðar Geirdal árið 2004. Hún undraðist það í samtali við fréttastofu í dag hvað Kópavogsbær hefði haft mikil viðskipti við dóttur bæjarstjórans og sagði það í hæsta máta óeðlilegt. Alls fékk Frjáls miðlun rúmar 3,4 milljónir króna fyrir að útvega ljósmyndir, hanna og brjóta um afmælisritið á árunum 2004 og 2005 og lauk það sínum hluta verksins að sögn upplýsingafulltrúa Kópavogs. Textasmíð var ekki í höndum dóttur Gunnars, hann kláraðist hins vegar ekki og því er handritið ennþá í próförk á bæjarskrifstofum Kópavogs. Fréttastofa leitaði til auglýsingastofu í Reykjavík sem hefur öllu meiri umsvif en Frjáls miðlun en er þó ekki ein af stærstu og dýrustu auglýsingastofunum. Að mati þeirrar stofu hefði þótt gott að fá sex hundruð þúsund og upp í eina milljón króna á þessum tíma fyrir verk af þessum toga. Þetta hlýtur að vera eitthvert dýrasta rit sem ég hef heyrt um, sagði framkvæmdastjóri stofunnar við fréttastofu. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist í samtali við fréttastofu í dag ekki hafa forsendur til að meta umfangsmikla verkefnavinnu dóttur bæjarstjórans við Kópavog - hann myndi því ekki tjá sig um þetta mál fyrr en niðurstöður koma frá endurskoðun Kópavogsbæjar.
Mest lesið Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Innlent Fleiri fréttir Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Sjá meira