FME og Ríkisskattstjóri gera samstarfssamning 10. nóvember 2009 11:06
Fjármálaeftirlitið (FME) og Ríkisskattstjóri hafa ákveðið að auka með sér samstarf sem beinist að því að efla samvinnu eftir því sem lagaheimildir standa til og hafa gert með sér samstarfssamning þar að lútandi. Í frétt um málið á heimasíðu FME segir að í samningnum felst að Ríkisskattstjóri og Fjármálaeftirilitið munu leggja sig fram við að koma á virkum upplýsingaskiptum sín í milli og skuldbinda sig til að miðla upplýsingum um það sem þau komast að í sýslan sinni og talið er að falli undir starfsvettvang viðkomandi stofnunar þó í samræmi við takmarkanir í lögum um aðgang að gögnum og upplýsingum. Samkvæmt samningnum mun Fjármálaeftirlitið fá aðgang að vissum skrám Ríkisskattstjóra. Upplýsingar sem hvor samningsaðili veitir hinum eru háðar þagnarskyldu lögum samkvæmt og skulu þær einungis nýttar í starfsemi samningsaðila. Skipaður verður tengiliður hjá hvorum samningsaðila og munu þeir skiptast á upplýsingum í kjölfar reglulegra samráðsfunda sem haldnir verða. Í samstarfssamningnum felst enn fremur að Ríkisskattstjóri og Fjármálaeftirlitið munu stuðla að aukinni þekkingu starfsmanna hvorrar stofnunar á eðli og störfum hinnar og halda í því skyni gagnkvæma fræðslufundi fyrir starfsmenn. Mynd frá þvi er samstarfsamningurinn var undirritaður. Frá vinstri: Sigurveig Guðmundsdóttir, hagfræðingur hjá Fjármálaeftirlitinu, Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri og Guðrún J. Jónsdóttir, lögfræðingur hjá Ríkisskattstjóra.
Mest lesið Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Sjá meira