Þjóðarbúið skuldar 524 milljarða umfram eignir 26. nóvember 2009 16:10
Erlend staða þjóðarbúsins að frádregnum eignum og skuldum innlánsstofnana í slitameðferð var neikvæð um 524 milljarða kr. í lok þriðja ársfjórðungs, þar af voru eignir 2.612 milljarðar kr. og skuldir 3.137 milljarðar kr.Þetta kemur fram á vef Seðlabanka Íslands þar sem birt hefur verið bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á þriðja ársfjórðungi 2009 og um stöðu þjóðarbúsins í lok fjórðungsins.Viðskiptajöfnuður var óhagstæður um 36 milljarða kr. á þriðja ársfjórðungi sem er rétt um 29 milljarða kr. betra en á fjórðungum á undan. Rúmlega 16 milljarða kr. afgangur var á vöruskiptum við útlönd og 20,8 milljarða kr. afgangur var á þjónustuviðskiptum. Jöfnuður þáttatekna var hinsvegar neikvæður um 73 milljarða kr.Halla á þáttatekjum á þriðja ársfjórðungi má eins og áður að langmestu leyti rekja til innlánsstofnana í slitameðferð, en um er að ræða reiknaða áfallna vexti sem mynda ekki raunverulegt greiðsluflæði frá landinu.Reiknuð gjöld vegna innlánsstofnana í slitameðferð námu 51 milljarða kr. og tekjur 24,6 milljarða kr. og eru því neikvæð áhrif á þáttatekjujöfnuð vegna þeirra um 26,5 milljarða kr.Þáttatekjujöfnuður án áhrifa innlánsstofnana í slitameðferð var því neikvæður um 46,5 milljarða kr. og viðskiptajöfnuður neikvæður um 9,5 milljarða kr. Vaxtagjöld hluthafalána hafa einnig mikil neikvæð áhrif á þáttatekjujöfnuðinn en þau hafa aukist jafnt og þétt síðastliðin tvö ár.Erlendar eignir námu 8.930 milljarða kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 14.669 milljarða kr. Hrein staða við útlönd var því neikvæð um 5.739 milljarða kr. og lækka nettó skuldir því um tæpa 90 milljarða kr. á milli ársfjórðunga. Í tölum um erlendar skuldir eru meðtaldar eignir og skuldir innlánsstofnana í slitameðferð.Gerð hefur verið breyting á framsetningu eigna og skulda þeirra í yfirliti um erlendar skuldir og erlenda stöðu þjóðarbúsins. Teljast þær ekki lengur með innlánsstofnunum heldur eru settar fram í nýjum lið sem nefnast "Innlánsstofnanir í slitameðferð" sem er undirliður liðarins "Aðrir geirar". Tímaröðin fyrir þennan nýja lið hefst á fjórða ársfjórðungi 2008. Einungis bankar og sparisjóðir sem eru starfandi sem innlánsstofnanir eru nú flokkaðir undir samnefndum lið frá sama tíma.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira