Stríðsástand gæti skapast verði Icesave hafnað 26. júní 2009 06:00 Segist sannfærður um að þingmeirihluti sé fyrir Icesave-samningnum þegar þingmenn hafa kynnt sér allar hliðar málsins. Mynd/Valli
Samþykki Alþingi ekki ríkisábyrgð á Icesave-lánið gæti skapast stríðsástand í efnahagslífinu hérlendis, Ísland fengi hvergi fyrirgreiðslu, fyrirtæki færu unnvörpum í þrot og við yrðum sett á sama stall í samfélagi þjóðanna og Kúba og Norður-Kórea. Þetta segir Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor sem segist mjög hissa á óábyrgri afstöðu sumra stjórnmálamanna til málsins. Fram kom í Fréttablaðinu í gær að samþykkt ríkisábyrgðarinnar stendur tæpt. Nær allir þingmenn stjórnarandstöðunnar hyggjast greiða atkvæði gegn henni að óbreyttu og því veltur samþykktin á afstöðu Vinstri grænna. Nokkrir þeirra hafa hins vegar lýst efasemdum sínum með samninginn, þar á meðal heilbrigðisráðherrann Ögmundur Jónasson. Talið er að ríkisstjórnarsamstarfinu sé sjálfhætt af hálfu Samfylkingarinnar ef samningurinn verður felldur. „Þetta er alveg hrikalega ljót sviðsmynd sem þá kemur upp," segir Þórólfur. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hafi til dæmis sagt að lánin frá Norðurlandaþjóðunum og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum velti á samþykktinni. „Ég þori eiginlega ekki að hugsa þessar hugsanir alveg til enda," segir Þórólfur. „Þess vegna er ég mjög hissa á þeirri óábyrgu afstöðu sem stjórnmálamennirnir sýna." „Svo er að sjá að Íslendingar eigi engra góðra kosta völ í þessari stöðu og að hugsanlega sé sá kostur að hafna samkomulaginu lakari vegna afleiðinga sem það kann að hafa í för með sér," segir Ólafur Ísleifsson, hagfræðingur við Háskólann í Reykjavík. „Það stendur hins vegar upp á stjórnvöld að skýra nánar hvernig þrýstingurinn á Íslendinga birtist og hvað það hefði í för með sér ef Alþingi neitar að samþykkja samninginn. Það er ógott að upplifa hversu einangraðir og vinafáir Íslendingar virðast vera í veröldinni um þessar mundir." Steingrímur J. Sigfússon segist sannfærður um að meirihlutastuðningur sé fyrir samningunum á Alþingi. Frumvarpið verður líklega ekki lagt fyrir þingið fyrr en eftir helgi, en fjármálaráðherra kom frá útlöndum í gær. Steingrímur segir að mikilvægt sé að menn virði hina þinglegu meðferð og taki afstöðu til samningsins eftir þeim gögnum sem lögð verða fyrir þingið. „Ég treysti því að menn sjái að þetta er skásta leiðin sem við eigum út úr stöðunni. Þetta er illskásti kosturinn og ég mæli af fullri sannfæringu með því að þingmenn styðji frumvarpið." Steingrímur segir að ef menn setji sig inn í allar hliðar málsins sjái þeir að samningaleiðin ein gangi. „Ég fundaði með hollenskum ráðherrum hér ytra og ekki held ég að yrði létt fyrir fæti að fara aftur á byrjunarreit og reyna að ná hagstæðari niðurstöðu ef þessi tilraun rynni út í sandinn."
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Fleiri fréttir Fjórar af sex verslunum NTC urðu fyrir skemmdum Parísarhjól sprettur upp við höfnina Virðast ætla að opna Kringluna á þriðjudaginn Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Sjá meira